Heilun og kærleikur
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Líknandi hendur
Hefur þú lesandi góður skoðun á því sem ég er að gera í Bústaðakirkju og hve oft ætti að halda slíka samkomu.Vinsamlega skráið comment undir kirkjufærsluna efst á síðunni.
14.08.2010 19:55:17 / heilun

Bústaðakirkja í Reykjavík

Verð með hugleiðslu og kyrrðarstund
í Bústaðakirkju Mánudaginn 6 September  kl.20.00. Þeir sem vilja þiggja innblástur í hjartarótina vegna vanlíðunar eða annarra orsaka eru hvattir til að koma og eiga þar stund með góðu fólki en allir eru hjartanlega velkomnir .
Nánar á heimasíðu kirkjunnar

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.07.2010 09:20:01 / heilun

Bústaðakirkja í Reykjavík

Verð með hugleiðslu og kyrrðarstund
í Bústaðakirkju Sunnudaginn 8 ágúst  kl.20.00. Þeir sem vilja þiggja innblástur í hjartarótina vegna vanlíðunar eða annarra orsaka eru hvattir til að koma og eiga þar stund með góðu fólki en allir eru hjartanlega velkomnir
Við siglum í ólgusjó og sameinuð komumst við í gegn um brimskaflana með hjálp æðri máttarvalda.
Kirkjudyrum verður ekki lokað
Þakka innilega öllum þeim sem komu og áttu með okkur kvöldstund og eru allar líkur á að framhald verði á þessum kvöldum sérstaklega þegar hausta tekur
.                                                     


» 14 hafa sagt sína skoðun

06.07.2010 21:40:19 / heilun

Bústaðakirkja í Reykjavík

Verð með hugleiðslu og kyrrðarstund í Bústaðakirkju Sunnudaginn 18 júlí  kl.20.00. Þeir sem vilja þiggja innblástur í hjartarótina vegna vanlíðunar eru hvattir til að koma og eiga þar stund með góðu fólki en allir eru hjartanlega velkomnir
Við siglum í ólgusjó og sameinuð komumst við í gegn um brimskaflana með hjálp æðri máttarvalda.
Kirkjudyrum verður ekki lokað



» 27 hafa sagt sína skoðun

10.05.2010 13:51:02 / heilun

Einarsstaðakirkja S-Þingeyjarssýslu

Verð með hugleiðslu og kyrrðarstund í Einarsstaðakirkju  S-Þingeyjarssýslu Miðvikudaginn 16 júní kl.1800. Þeim sem líður illa á sál eða líkama eru hvattir til að koma og eiga þar stund með góðu fólki.
Kirkjudyrum verður ekki lokað
                                                          17 júní
Mig langar að færa öllum þeim sem komu og fylltu kirkjuna víða að af landinu mínar bestu þakklætis kveðjur því ég átti hreinlega ekki von á svo mörgum og heimilisfólkinu er einnig þakkað fyrir kaffiveitingar og velvild.


                                                         

» 9 hafa sagt sína skoðun

23.04.2010 15:18:26 / heilun

Siglufjarðarkirkja

Verð með hugleiðslu og kyrrðarstund í Siglufjarðarkirkju Föstudaginn 7 Mai kl.20.00. Þeim sem líður illa á sál eða líkama eru hvattir til að koma og eiga þar stund með góðu fólki.
Kirkjunni verður ekki lokað

» 11 hafa sagt sína skoðun

28.03.2010 20:21:52 / heilun

Eyjafjallajökull og Fimmvörðuháls

                                                       

                                                    Uppfært 27 Júní

Það er kanski rétt að nefna ónot í mér um hættu á gossprengingu og ösku á öðrum stað en núverandi gos og farið því varlega því ekki er víst að það dugi að hlaupa. Því miður get ég ekki tímasett þetta en biksvart ský kemur frá þessum stað og sýnist mér eins og íshellan lyftist.
                                           Uppfært 29 mars 2010
Svæðið undir jöklunum og rennsli frá vestri til austurs hefur aukist og breytt úr sér og skjálftavirkni er að aukast og mér er alls ekki rótt.
Það mun eitthvað mikið gerast næstu daga eða vikur finnst mér og sjálfur færi ég aldrei inn á þetta svæði.
                                             Uppfært 31.03 2010
Menn eru nú loksins að sjá hættuna þar sem ný sprunga hefur opnast í NA hlutanum eins og ég sá fyrir og þess vegna ætti enginn að vera þarna því hættan er mikil og enginn af sérfræðingunum hefur séð rennslið enn sem er undir fótum fólks sem sprangar þarna um.  Merkilegt finnst mér að allir þessir sérfræðingar og mælitæki geti ekki séð hvað sé að gerast þarna.
                                              Uppfært 1 apríl 2010

Jarðskjálfti upp á 2,6 á richter skók jörðu í Þórsmörk og nágrenni fyrir stundu. Samkvæmt jarðskjálftafræðingi hjá Veðurstofunni átti skjálftinn upptök undir Eyjafjallajökli.
Mér finnst eins og þrýstingur sé að aukast undir jöklinum og bræði ís vegna kviku sem komin er þar upp en hún dreyfist um eins og árfarvegur og ómögulegt að segja nokkuð með vissu en þarna gæti orðið gríðarleg sprenging og husanlega mannskæð verði ekki farið varlega.
                                           5 apríl 2010

Eldfjallafræðingar hafa nú staðfest að hraunkvikan sem kemur úr jöklinum sé kvikurennsli á yfir 20km dýpi úr innri möttli jarðar eins og ég sá það á sl.ári og nú en þessir miklu jarðskjálftar og breyting á sporbaugi jarðar hefur aukið þrýstinginn.
Nú rennur hraunið eins og á í átt að jöklinum en mun breiðara 50-100 metrar og ryður úr bökkum með sér og breikkar.
 Það fer að hluta undir jökulinn og hitar þar upp og mun gjósa á suðurhluta Eyjafjallajökuls áður en langt um líður og eins finnst mér eins og gat komi á Kötlu í SV horni og þaðan streymi hraun yfir trjárækt og hugsanlega í átt að byggð.Þessi gos munu standa mánuðum saman enda nægt fóður í slíkt.
Rétt væri að setja jarðskjálftamælir sem mælir einnig landris við Reykjanesvita.
                                          5 apríl
Loka ætti fyrir alla umferð upp á jökulinn og girða þetta af áður en mannskaði verður en mikið verður um að vera næstu viku meiri skjálftavirkni og allt getur gerst.
                                         6 apríl
Mjög harðir jarðskjálftar hafa dunið yfir Eyjafjallajökul og Kötlu og nú getur allt skeð næstu daga enda er kvikusteymið af Reykjanesi tvöfalt stærra en það var.

 

2 manneskjur hafa nú látið lífið í saklausri skoðunarferð á hættuslóðir og menn koma jafnvel labbandi í skála eftir að hafa vaðið ár í frosti og kulda.    Það verður að skilgreina allar leiðir að jöklunum sem hættusvæði og banna alla umferð akandi og gangandi því fleiri gætu farist.    
                                                             12 apríl
Merkilegt hvað vísindamenn tala út og suður um Eujafjallajökul og gosið sé bara að hætta en stór hraunpottur undir?? Hvaðan kemur innrennslið og af hverju er það að breiðast út.? Ég sé þetta með öðrum hætti og kvikuinnskot eru enn í gangi og jarðskjálftar upp á 3.1 svo að mín sýn hefur ekkert breyst um að ýmislegt sé í aðsigi.
                                             14 apríl
                                  Mikil Hætta á Ferðum

Ég er löngu búinn að vara við stórkostlegri hættu á Eyjafjallajökli og nágrenni og vísindamenn verða bara að skoða sinn gang með yfirlýsingar og greina hættuna í tíma því nú skelfur allt svæðið frá Reykjanesi og í Grímsvötn.  Af hverju??
Ég sagði áður að mikil hætta væri á stórsprengingu á toppi fjallsins og hann gæti hreinlega sprungið í loft upp ekki einhverjir smáklakar heldur heilu björgin.Byggð gæti verið í hættu og því þarf að hafa varann á.

                                                14 apríl kl.2120
Ég ber ótta til að vita af fólki heima hjá sér í nótt því mikið mun ganga á og svartir strókar eru þegar farnir að koma upp eins og ég sagði og menn verða að skoða þetta mun betur því allt getur gerst. það væri grátlegt fyrir heimsku ef einhver týndi lífi því fjallið bíður ekki springi það upp.

                                               15 apríl
Svartur er mökkurinn sem kemur úr Eyjafjallajökli og inniheldur brennisteinssýru að mér finnst ásamt flúor og einhverju öðru efni sem ekki er gott fyrir menn eða skepnur.
Að venju látum við hvern dag nægja sína þjáningu en skoðum ekki heildarmyndina þegar vindátt snýst og öskufall verður um Suðurland og Reykjavík.

 Þetta mun valda óhemju vandamálum ökutæki þola þetta illa skepnur líka og þeir sem eru viðkvæmir í lungum verða mun verri enda verður loftið súrt mun verra en í Vestmanneyjagosinu að mér finnst.

Hreindýr á Austfjörðum munu falla verði þeim ekki smalað í tíma til byggða þegar askan berst á beitilönd þeirra og vatnsból.

Vatnsból okkar í Heiðmörk fara ekki varhluta af þessu og gæti átt auðvelda leið að menga vatnsbólin ekki bara hér heldur um allt land þar sem jarðvatn er notað.

Við getum hent Fjárlögum 2010 og umgjörð þess 2011 og byrjað upp á nýtt með enn færri krónum og þetta mun valda gríðarlegu tjóni um alla Evrópu vegna öskufalls eitrunar á ökrum spillingu vatnsbóla röskun eða jafnvel alsherjar stöðvun á öllu flugi um lengri eða skemmri tíma sem fer algjörlega eftir vindátt.

Þá er næsta vers það eru veðurfarshorfur sem ég hef áður talað um í spám mínum fyrir utan tilfærslu sporbaugs en þar gæti verði gosið langvinnt haft enn verri áhrif á kulda og hita víða um heim og sérstaklega í Evrópu fimbulvetur og steikjandi hiti.
Það verður að horfa á heildarmyndina hér á landi í tíma og tryggja nægar vistir fæðu og vatn því tímar munu breytast með vindáttinni.

Nú stafar þjóðinni virkileg hætta og þá sitja þingmenn og ræða allt annað en hvað skal gera þegar kanski um helgina kolsvört askan leggst yfir Suðurland og Reykjavík ökutæki stöðvast vegna stíflu í lofthreinsurum loftræstikerfi hætta að virka ekki hægt að opna glugga eða fara eitt né neitt rafmagn gæti farið af vatns og matarskortur yrði allt eftir vindátt??
                                              16 apríl

                                      Katla
Eins og mér sýnist staðan núna er enn að aukast aðrennslið frá Reykjanesi austur um á mismiklu dýpi og fer undir jökulinn og bræðir þar ís en hleðst þar upp á meðan brætt er en þá sýnist mér aðrennslið leitað annara leiða við fyrirstöðu undir Eyjafjallajökli og fara mjög nálagt einskonar undirgöngum við Kötlu og hörfa aftur til baka þegar vatnslosun er lokið í gígunum og sama ferli fer aftur af stað.

Þetta er einhver rás í SV eða SA horni Kötlu svona miðja vegu upp fjallið sem er að víkka við þessi innskot fram og aftur.

Hluti rennslisins fer norður fyrir jökul og áfram til norðurs að Þeystareykjum en í augnablikinu sé ég ekki hvort að þar munu gjósa eða nær Suðurlandinu.

Rifan á jöklinum gæti alveg opnast langsum og fjallið í raun klofna og gerist það er ómögulegt að segja hvað muni ske en einhverjar vikur eru í slíkt.

Flugumferð mun raskast áfram um allan heim allt eftir vindátt hverju sinni og verða mjög dýrkeypt fyrir alla ferðaþjónustu þar og hér. Matjurtir gætu verið í hættu vegna fluors

Það var að koma inn sérkennileg sýn varðandi skemmtiferðaskip sem mér sýnist að fái annað veigameiri hlutverk að koma fólki á milli heimsálfa en nákvæmlega hvenær veit ég bara ekki á þessari stundu.    
                                                Katla

 Við skulum fylgjast vel með Kötlu og skot komi úr SV eða SA horni svona um miðja vegu fjallsins en einnig finnst mér líkur á að núverandi gosstöðvar skeri fjallið í sundur.

Ekki er útilokað að þriðja gosið fari af stað en meira um það um helgina en þetta er bara býsna óþægilegt á að líta séð neðanfrá. NASA og færustu sérfræðingar erlendis þurfa að koma hingað okkur til aðstoðar

Glerbrotin sem ég talaði um eru mjög hættuleg geta rifið lungnablöðrur og maga en þau hafa myndast á yfir 20km dýpi og því skal fólk hafa allan vara á heilbrigðir sem sjúkir.

Þá má vera ljóst að ekkert flugfélag í heiminum mun geta til einhvers tíma greitt milljónum manna fæði og uppihald vegna eldgossins og segir raunar allt sem segja þar um það.

Menn geta séð að hlutabréf í öllum flugfélögum hrundu niður á við í dag og munu gera svo áfram og spilafíklarnir á Wall Street fá sinn poka en geðveikt kapphlaup án innistæðna komst af stað aftur hjá stærstu bönkum veraldar.

Góðar stundir

                                                        19 apríl
Þrýstingur er aftur að rjúka upp undir jöklinum og á víðara svæði og aldrei að vita hvað gerist.Bætti inn í Völvuspána framhaldi dagsins

                                                        21 apríl
Þrýstingur eykst enn og skot gæti komið hvenær sem er en nákvæmlega hvar er ekki gott að segja en þéttir skjálftar liggja milli jöklana áfram til norðurs um Kópasker og Grímsey.
Þessi mikli hristingur í jarðskorpunni undir landinu gefur fulla ástæðu til að fylgjast með botni lónsins Kárahnjúkavirkjunnar en fyllt var þar í sprungur en það gæti breyst haldi landið áfram að hristast svona mikið.

Hvað flugið varðar hérlendis og í Evrópu vísa ég í spána hér að ofan sem er óbreytt og full ástæða til að fara varlega í háloftunum.

                                                           26 apríl
Stanslausir nokkuð stórir jarðskjálftar eru við Kistufell og Barðarbungu og sá grynnsti 1.5 km og þar getur allt gerst en hraunstraumur stefnir þangað bæði ofan og neðanjarðar frá Eyjafjallajökli og gæti komið skot frá 2 stöðum en tímasetningar eru óvissar en betra að hafa varann á.
                                                             27 apríl
Skjálftavirknin breiðir enn úr sér og hefur Siglufjarðarsvæðið bæst við og má segja að allt of stór hluti landsins sé að skjálfa í einu nánast stanslaust.
                                                            
                                                                 2 mai
              Stór spá í vændum alveg á næstunni sem er stór í sniðum þegar ég er búinn að vinna úr tossamiðunum mínum                   
                                                                  3 mai
Sl.nótt hjá mér var sértök fyrir þann þátt að drauma man ég aldrei nema eitthvað sérstakt sé um að vera en í þessum hristist ég og skalf í skjálfta en átta mig ekki á hvar ég var staddur þá stundina. 

Þetta getur varla verið gleðilegur fyrirboði en ástandið eystra mun ekki batna á næstunni fremur á hinn vegin og öskugos aukast og trufla flugumferð aftur en nú í meira mæli en áður en tímasetning óviss. 

Þá mun koma upp annað gos og er Heklutoppur aftur kominn inn eins og í fyrri sínum en augu mín beinast einnig að SV hlíðum Kötlu gömlu.  
     
                                                    Hætta á Ferðum       
      
Það á enginn að koma nálagt jöklinum núna og framvegis og hafa jarðvísindamenn fengið vott af gaseitrun við störf sín í dag.Hvernig virkar mixtúra af jarðgasi og eldi í eldfjalli??  Sprengigos                        
                                                                 5 mai
Visindamenn segja í fréttum dagsins að þeir hafi loksins geta staðsett það sem sé að gerast og það sé ný kvika á leiðinni upp beint undir jöklinum á 23 km dýpi og þrýsti hinu sem er fyrir ofan á undan sér og lýst mér illa á þann óskapnað sem kemur
                             
                                                                 12 mai
  Mér finnst stutt í að alvarlegir hlutir fari að gerast í iðrum jarðar sem brjótast mun út með miklum látum og er ekki ólíklegt að það muni gerast á tveim stöðum og sá þriðji gæti verið neðansjávar. 

Ég get ekki staðsett þetta nákvæmlega þar sem hraunið úr innri mettli jarar kemur að frá tveim stöðum frá Reykjanesi og beint undir jöklinum á miklu dýpi. Þegar gosrásin þrengist meira getur allt gertst en vísindamenn ættu að sjá þennsluna á mælum sínum og vara við í tíma.

Ég er ekki viss um að Kárahnjúkalónið haldi vatni mikið lengur og finnst mér sprungur þegar hafa myndast.
                                                                 15 mai
                                             

Það má segja að Suðurhluti Íslands sé á tímamótum þegar litið er fram í tímann og þau ósköp sem við eigum eftir að upplifa frá móður náttúru þegar sprengigosið kemur en ekki er langt í það og allt eins víst að það verði í SV hlíðum Kötlu eins og ég sá áður en gosrásin er að þrengjast og ruðningurinn neðanjarðar leitar annarra uppgönguleið.

Kolbikasvartur mökkur fylgir þessu mun svartari en hingað til og eiturgas í meira mæli að mér finnst.

Þeir sem búa á Steinum og Hvassafelli ættu að vera á varðbergi og í raun finnst mér eins og enginn eigi að vera nálagt fjallsrótunum hvorki menn né skepnur.

Nauðsynlegt er að setja upp gasskynjara í útihúsum og heimilum sem eru næst fjöllunum .

Sellfoss verður þakið ösku svo og Reykjavík innan tíðar en hvort allt svæðið eða hluti er ekki gott að segja.

Svæðið norður af Húsavík er viðkvæmt einkum hafsbotninn og svæðið suður af Grindavík.

Ekki er hægt að tímasetja þetta með nákvæmni en einhverjar vikur.

Flugfélög hér heima verða fyrir miklum búsrifjum vegna truflanna á starfsemi sinni og óvíst hver komi þeim til aðstoðar frekar en þau Evrópsku sem eiga erfitt af sömu ástæðu og munu þurfa að búa við truflanir vegna ösku í marga mánuði enn jafnvel ár.

Verði ekki farið varlega gæti þessi atburður kostað mannslíf og búpenings.
                                                        21 mai
Ítreka varnaðarorð hér að ofan með gasið sem kemur úr gosrásinni til hliðar við aðalrásina og er baneitrað. 

Því fer fjarri að gosinu sé lokið og betra að vera viðbúin þegar næsta gosi kemur í SV hlíðunum með miklum kvelli.

Mér finnst yfirvöld taka þessu með miklum léttleika en íbúarnir ættu að standa klárir að því að bregða búi og koma sér af svæðinu með litlum fyrirvara.

                                                          22 mai
Veðurstofan hefur nú staðsett skjálfta í Hofsjökli sem fer illa í mig og það þarf að fylgjast vel með á því svæði það er eitthvað mikið að fara að gerast mjög fljótlega.

                                                           24 mai

Ég get ekki séð á mínum sýnum að hrauneðjan neðanjarðar sé í pásu heldur dreifist um kanski vegna þrengina á gígnum en ég fæ ekki tilfinningu fyrir því að gosóróa á jöklum landsins sé lokið heldur þvert á móti en hvar og hvenær er stóra
spurningin og það verður skot.

                                                          30 mai
Stanslausir jarðskjálftar eru nú á Suður og Norðurlandi og eru þeir það tíðir að allt getur skeð. Eldgos með sprengingum er í Mið og Suður Ameríku og ekki talin tengsl þar á milli en ég sé það með öðrum hætti svo og hér á landi.

Þetta á eftir að valda vandræðum því að í ofan á lag geysa mjög harðir fellibyljir á svæðinu flóð og eðjuflóð sem hafa orðið mörgum að bana. Það er svo margt að ske í jarðskorpunni að ómögulegt er að spá fyrir hvernig þetta muni verða í framtíðinni hér á landi.
                                                             6 júni
                            Sjá Völvuspá  að neðan um framhaldið

Nauðsynlegt er að setja upp gasskynjara í útihúsum og heimilum sem eru næst fjöllunum .Sellfoss verður þakið ösku svo og Reykjavík innan tíðar en hvort allt svæðið eða hluti er ekki gott að segja.

Svæðið norður af Húsavík er viðkvæmt einkum hafsbotninn og svæðið suður af Grindavík.

Ekki er hægt að tímasetja þetta með nákvæmni en einhverjar vikur.Flugfélög hér heima verða fyrir miklum búsrifjum vegna truflanna á starfsemi sinni og óvíst hver komi þeim til aðstoðar frekar en þau Evrópsku sem eiga erfitt af sömu ástæðu og munu þurfa að búa við truflanir vegna ösku í marga mánuði enn jafnvel ár

.Verði ekki farið varlega gæti þessi atburður kostað mannslíf og búpenings. 
 
                                                      21 mai
Ítreka varnaðarorð hér að ofan með gasið sem kemur úr gosrásinni til hliðar við aðalrásina og er baneitrað.  Því fer fjarri að gosinu sé lokið og betra að vera viðbúin þegar næsta gosi kemur í SV hlíðunum með miklum kvelli.

Mér finnst yfirvöld taka þessu með miklum léttleika en íbúarnir ættu að standa klárir að því að bregða búi og koma sér af svæðinu með litlum
fyrirvara.  
                                                        22 mai
Veðurstofan hefur nú staðsett skjálfta í Hofsjökli sem fer illa í mig og það þarf að fylgjast vel með á því svæði það er eitthvað mikið að fara að gerast mjög fljótlega.
  
                                                         24 ma
Ég get ekki séð á mínum sýnum að hrauneðjan neðanjarðar sé í pásu heldur dreifist um kanski vegna þrengina á gígnum en ég fæ ekki tilfinningu fyrir því að gosóróa á jöklum landsins sé lokið heldur þvert á móti en hvar og hvenær er stóra spurningin og það verður skot. 
                                                         30 ma
iStanslausir jarðskjálftar eru nú á Suður og Norðurlandi og eru þeir það tíðir að allt getur skeð. Eldgos með sprengingum er í Mið og Suður Ameríku og ekki talin tengsl þar á milli en ég sé það með öðrum hætti svo og hér á landi

.Þetta á eftir að valda vandræðum því að í ofan á lag geysa mjög harðir fellibyljir á svæðinu flóð og eðjuflóð sem hafa orðið mörgum að bana.

Það er svo margt að ske í jarðskorpunni að ómögulegt er að spá fyrir hvernig þetta muni verða í framtíðinni hér á landi.        
                                                     13 júní
Það virðist sem svo að jarðvísindamenn einblíni eingöngu á Eyjafjallajökul þótt stanslausir jarðskjálftar yfir 2 séu út af Reykjanesi og utan við Grindavík og einnig fyrir norðan.Þetta vekur hjá mér óróa og dagsetningin 22 júlí er enn inni en ég get ekki sagt nákvæmlega hvað muni gerast en það verður stórt eignatjón og einhverjir gætu slasast.
Ég vil biðja alla landsmenn að sameinast með mér í bæn kl.1800 á Miðvikudagskvöld þar sem ég verð í Einarsstaðakirkju og biðjum fyrir jörðinni okkar og hjálp.
                                                         19 júní
Mér finnst eins og mun styttra sé í einhverjar hræringar í Jöklum en í fyrri spám svo að rétt er að vera viðbúin en ég get ekki sagt til um hvenær.
                                                            9 júlí
Mikill þrýstingur hefur verið í loftinu sl.3 daga sem wkki boðar gott. Svo gæti farið að Hekla gamla yrði ræst í stað Kötlu gömlu en það eru svo miklar hræringar í gangi að erfitt er að átta sig á þeim að öðru leiti en því að fljótandi kvika rennur undir landinu á ca.20km dýpi og erum við á einskonar gúmmíbáti ofan á.
                                                                3 ágúst
Færði yfir í Völvuspána þann hluta sem er óviðkomandi jöklum okkar því meira er í pípunum.


» 228 hafa sagt sína skoðun

28.03.2010 19:27:06 / heilun

Uppfærslur á Völvuspá

Ágætu lesendur.
Uppfærslur á Völvuspá eru neðst undir spánni rakinn eftir dagsetningum gamalt efst og það nýjasta neðst.
Völvuspá uppfærð 28 Ágúst     

Góðar stundir
                                      


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.03.2010 20:35:14 / heilun

Erum við að eyðileggja jörðina okkar?

Umgengni okkar og nýting á auðlindum jarðarinnar hafa gengið mjög nærri líftakti hennar með þeim afleiðingum að ójafnvægi hefur skapast sem mun hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér á næstu tveimur árum.

Skálmöld ríkir í því sem þið kallið trú eins og þið skiljið hana en eruð komin langt frá þeim vegi sem markaður var í upphafi og því verður breytt

Það stendur þú skalt ekki mann deyða en það er í engu virt

Þú skalt ekki ágirnast konu náunga síns sem er í engu virt og menn hafa tekið sér ný lögmál í hendur sem leyfa í raun trúlausum í nafni spámannsins Muhammeds að hafa margar eiginkonur en svo var ekki ritað í helgar bækur.

Það var heldur ekki skrifað að húðstrýkja skyldi konur og börn og minni mátta fyrir einhverja yfirsjón sem páruð var í bókina helgu sem þeir tileinka sér en ekki frá okkur.

Villimennska er sumstaðar svo sterkt að mannslífið er einskis virði og einstaklingar taka að sér villutrúarverk og láta lífið á altari heimskunnar sem þeir svara fyrir síðar.

Hvað áttu konur og börn sökótt við þessi grimmdarverk í skólastofum sínum eða á heimilum sínum?  Ekkert en vel er tekið á móti þeim hjá okkur.

Bannfæringar á einu trúmáli í nafni Lúters og leyfi gefið af villiklerkum til þess að eyða slíku fólki verður ekki liðið.

Menn skulu standa skil gjörða sinna þegar öll trúarbrögð heims verða sameinuð í eitt þegar tíminn er réttur fyrir ykkur til að fara eftir en hér í efra eru engin slík.

Mengun andrúmslofts og hlýnun jarðar mun halda áfram á meðan jörðin hristist og lönd munu fara undir sjó enda hafið þið takmarkaða virðingu hvort fyrir öðru og einskonar drottnunargirni eða árásargirni virðist yfirþyrmandi í sumum heimshlutum.

                         Undur heimsins hjá  Maya indíánum
Ekki fyrir löngu varð mér á að slaka um of í stofustólnum og notuðu mínir menn tækifærið til að fræða mig um uppruna mannkyns og hlutverk.
Það var skrítið að horfa á þennan þjóðflokk fyrst út um einskonar glugga og síðan ganga um meðal þeirra.
 Þetta fólk var ekki stórt ca.185cm þeir hæðstu og tungumálið sem þeir töluðu virtist einskonar gakk og gól ásamt fingramáli.
Konurnar sáu um söfnun allskonar jurta sumt saxað niður í krukkur og annað blandað saman við einskonar maisblöndu en ekkert kjötið sá ég þannig að ég geri ráð fyrir að þessi þjóðflokkur hafi verið grænmetisætur.
Þegar ég skoðaði nánar samfélag þeirra veitti ég því athygli að þegar sól var hæst á lofti safnaðist allur hópurinn saman í miðju þorpsins og kyrjaði einskonar söng eða tilbeiðslu en á þeirri stundu skynjaði ég sterka orku koma yfir þau öll í talsverðan tíma kanski 1 klst en eftir það fór hver í sína áttina.Konurnar sáu um börnin og sýndu þeim mikla umhyggju en karlmenn fóru út á akrana að dytta að einskonar áveitukerfi af hreinu vatni þar sem hluta var deild að þorpinu og öðrum á akrana þar sem grænmetið var ræktað.
Þeir voru einnig með afar frumstæð áhöld til matargerðar og smíðavinnu en það sem ég sá hlýtur að hafa verið sent til þeirra í einskonar miðlun og það hafi gert þeim kleift að sjá fram í tímann.
Mjög gamall maður sat á trébekk með sín áhöld og gerði tákn á steina og skinn hvaðan sem það kom því engin dýr sá ég en tilfinningin sem ég fékk var sú að þeir hafi í upphafi vega verið settir þarna til að kenna öðrum kynslóðum sjálfsþurftarbúsap og lifa á því sem jörðin gæfi af sér öðrum til fyrirmyndar.

Sýn þeirra fram í tímann virðist hafa verið þeim sjálfsögð og þeir verið einskonar skrásetjarar á tímatal en það hefðu þeir ekki getað án æðri vitundar og þess vegna hafi þeim ekki verið ætlað að skrá lengra en 20.12 2012.
Mér fannst mikill kærleikur með þessu fólki og samheldni í öllu sem þurfti að gera.

Næst var stutt stopp á vinnustofu Nostradamusar í gömlum kastalavirki einskonar turnherbergi en það var sama með hann sama tilfinning fyrir skrásetjara og fæ ég ekki aðra niðurstöðu en þá að hann hafi verið að vara aldirnar við hvað gæti gerst ef ekki væri gengið varlega um jörðina og framtíðarsýnir hans frá öðrum komnar honum til skrásetningar.

Hvar þessir aðilar voru nákvæmlega þegar ég fór þar um veit ég ekki en skóglendi var hjá indiánunum en kastalinn var ekki stór en ævaforn.
Ég get heldur ekki skilið þessar heimsóknir öðruvísi en svo að fólk þurfi að bera meiri virðingu fyrir jörðinni en gert er og sýna meiri mannkærleik gagnvart hvort öðru.
                                                   21.12.2012
Mikið efni er til um þennan dag sumir nefna þetta dómsdag og margar bækur hafa verið ritaðar af alls konar fræðimönnum sem tilgreina umbreytingu á orkusviði jarðar þar sem suður og norðurpóll hafa hlutverkaskipti til þess að jörðin tortímist.
Það sem ég má segja að ekkert af þessu er rétt en hrist verður upp í öllum heiminum án þess að valda manntjóni og þegar nær dregur og tíminn er réttur mun ég setja inn lýsingu þá sem ég hef fengið hvað muni raunverulega ske.

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2010 22:52:12 / heilun

Völvuspá 2010

                                                      1 janúar 2010
Fyrsta spá ársins er sérfærsla efst á heimasíðunni sem kom þegar ég horfði yfir það sem í vændum er og hvað þyrfti að gera til að draga úr þessari spennu stórveldanna en því til viðbótar er eins og Múslimar séu að búa sig undir alheimshryðjuverk til að vekja athygli á málstað sínum.

                                                                2 janúar
Mikill órói hefur verið í mér í dag og ég heyri skelfingaróp frá Múslimaríkjum þar sem framið verður mikið fólskuverk ofan á allt annað sem hefur verið að gerast síðustu daga.
Mér sýnist Óbama vera í þann mund að fremja sitt mesta glappaskot á hernaðarsviðinu gegn skæruliðum á úreltum gögnum sem mun kom í ljós. Hann mun ekki uppskera neitt annað sýnist mér en hugsanlegt stríð við Jemen. Hryðjuverk verða framin í London og Wasington og New York fljótlega og sýnist mér lestarkerfi koma þar við sögu.
Forseti vor situr hnýpinn þessa stundina á skrifstofu sinni heima og hugleiðir útleik úr þeirri gjörtapaðri stöðu sem hann sjálfur kom sér í og getur brugðið til beggja vona afsögn hans eða undirritun.
Ég hef skoðað landið fram í tímann varðandi snjóflóð og get ég ekki komið auga á neitt sem valda muni manntjóni en smá spýjur kunna að falla.

                                                                 5 janúar 2010
Ekkert mun koma fyrir Íslensku þjóðina vegna synjunar forsetans á Icesafe eftir því sem ég sé best fram í tímann en einhverjir munu sperra sig en þó mest ríkisstjórnin.
Eldgos finnst mér vera á næsta leiti og fannst mér eins og þorp væri þar upp við fjallgarð en að sjá þetta er eins og það byrji vestast í fjallinu og færi sig síðan til austurs en ekki hef ég hugmynd um hvar þetta er í heiminum.
Grunnt er á kvikuna í Heklu innan við 1 km en tímasetning óviss en gosin verða 2 hér á landi.
Því miður eru veðursfars horfur óbreittar hvað fimbulkulda varðar víða um heim óbreyttar og harðari ef eitthvað er og hugsanlega slegin kuldamet. Snjóar verða miklir og tafir á samgöngum og flugi víðar en mest hef ég áhyggjur af þeim sem verða úti vegna kulda og sérstaklega eldri borgarar en þeir verða margir víða um heim.
Aurskriður munu falla og valda manntjóni áfram og jarðskjálftar munu halda áfram en á minna dýpi til sjávar og einnig verða harðir skjálftar til landsins í Urarfjöllum Kákásus og í Asiu.
                            10 janúar 2010                  
                                                      
Ég var áður búinn að rita í athugasemdadálk grein um það veðurskeið sem allir undrast um allan heim en fyrir um mánuði síðan fannst mér eins og sporbaugur jarðar hefði breyst um hálfa gráðu og þar með segulsviðið og veðurkerfin innri þrýstingur í jarðskorpunni og hef fengið það staðfest frá þeim sem ég vinn með
Vísindamenn hafa ekkert látið enn uppi um þetta enn en það verdur varla mikið lengur þegar þeir átta sig á að allar formúlur um gróðurhúsabreytingar eru úreltar og tíminn mun skemmri en áætlað var svo munar tugum ára.
Þegar ég skoða tímann sem til stefnu er áður en varanlegar veðurbreytingar verða er um 15 ár og því útilokað fyrir stærstu ríki veraldar að gera slíkar breytingar innan þessa tímaramma.
Rafmagn verður luxusvara innan 10 ára og af mjög skornum skammti víðar og verðlagning samkvæmt því.
Þetta mun einnig hafa mikil áhrif á framboð matvæla korns sem dæmi vegna kulda og því hækka nánast allar matvörur á næstu 2 árum erlendis og hér líka.
Ég segi enn og aftur til bænda að gleyma ferðamennsku og fara í kornrækt í stórum stíl til manneldis á öllum auðum blettum á þeirra jörðum.
Það má enn búast við hörðum jarðskjálftum víða um heim næstu 3 ár hið minnsta og lýtur út eins og sprungið egg þar sem skurnin er laus og færist fram og aftur.

                                                    11 janúar
Þann 29 september 2008 skrifaði ég um þá sýn mína að ástandið við Íran og karnorkuvopn þeirra væri mjög eldfimt en það sem ég setti ekki inn var sú sýn að mjög stórt svæði sem ég sá var biksvart með hvítum skellum líklega vegna notkun kjarnavopna þar sem svæðið er svo stórt fleiri þúsund ferkílómetrar.
Fréttir erlendis frá nú í morgun að Bandaríkjastjórn sé tilbúin með innrásaráætlun inn í Íran og gjöreyðingu kjarnorkuvopna þeirra eða Ísraelsmenn gefi Íran ekki að þeirra kröfu og hætti.
Þetta eru skelfilegar fréttir og munu hafa sjái ég rétt alveg skelfilegar afleiðingar fyrir allan heiminn þar sem þá væri verið að ráðast inn í ríki heittrúaðra Múslima.

Þá leika fjármálafíklar á Wall Street enn sama leik þessir með þykku gleraugun  eins og ég nefni hér ofar í spánum og hafa ekkert lært og Bandaríkjastjórn ræður ekki við málið þar sem boðaðar eru himinháar bónusgreiðslur til starfsmanna.
Séð fram í tímann og aðrar ráðagerðir stjórnarinnar sýnist mér innan 5 ára munu gera landið nánast gjaldþrota og þar sem hér er um að ræða stærsta hagkerfi heims hefur þetta áhrif á alla heimsbyggðina.
Innan 3 ára sýnist mér verður nýja almannatryggingakerfið sem verið var að innleiða svo dýrt í rekstri að það verður þeim ofviða án skuldsetningar.
Þegar kemur fram í apríl 2010 sýnist mér að eitthvað muni gerast með lánshæfi Bretlands á lánamarkaði og um mitt ár hjá Bandaríkjunum en þetta boðar ekki gott.

                                                      

13.01.2010 08:09:52 / heilun

Haiti í rúst eftir jarðskjálfta

Því miður gekk spáin mín eftir um miklar hamfarir á Atlandshafi eftir frá 3 október 2008 þegar gífurlegur jarðskjálfti upp á 7.3 reið yfir Haiti og lagði borgina í rúst.Hugur okkar er hjá þeim tugum þúsunda sem hafa látið lífið eða eru stórslösuð í húsarústum. Því miður sýnist mér að bráðlega komi annar eftirskjálfti upp á rúma 6.
Þessar hamfarir nálgast Tasunami sem varð mörgum að fjörtjóni en mér finnst eins og kuldi verði á svæðinu næstu 2 vikur og af þeim sökum muni margir særðir og börn ekki lifa þetta af.
                                                                       Flóð
Ég fæ tilfinningu fyrir því að hugsanlega gangi flóðbylgja á land eftir öflugan skjálfta þarna og svæðið sem ég sé virðist mér þéttbýlt en nú í rústum og ekki ólíklegt að þetta sé fátækrahverfi en hvenær þetta skeður má almáttugur vita.

                                                            16 janúar 2010
jarðfræðingar og aðrir vísindamenn hafa ekki enn komið auga á hvað raunverulega er að gerast á hafsbotninum umhverfis Haiti og í 360 gráðu hring.
Yrði farið með fjölgeislamæli á svæðið mætti sjá djúpar sprungur á botninum á sumum stöðum og fjallgarða á öðrum þar sem flekar hafa núist saman eins og krumpuð áldós og á eftir að valda meiri hamförum á stærra svæði og allt upp á ströndum Bandaríkjanna

Mannfall á Haiti gæti nálgast 800.000 þegar nánar verður skoðað en allt að 3 mánuðir munu líða áður en það verður ljóst þar sem heilu þorpin hafa farið niður í sprungur á eyjunni og innsvæðið með öllu ókannað.

                                                               Heimurinn
Skoðið vel spár um fjármálastöðuleika heimsins í fyrri spám mínum en mikið mun gerast á næstu 3 mánuðum.
Grimmdarverkum mun einnig fjölga og hugsanlega stutt í stríðsátök .
Mér sýnist þegar líður á að Grikklandi verði komið til aðstoðar fjárhagslega en horfur fyrir Breta um þjóðargjaldþrot vegna skulda gæti orðið á þessu ári vegna pundsins og eins þess að þeir ríkustu munu flýja land til Swiss og þar fer stór biti úr tekjuköku Darlings enda tapar Verkamannaflokkurinn næstu kosningum.
Mér sýnist Kina vera með eitthvað í pípunum varðandi bankakerfi sitt útlán og tryggingar lána sem koma muni illa við önnur lönd í lok vetrar og jafnvel setja USA í mikinn vanda.
                                                              20 janúar 2009
Spá mín frá 27 Desember er betur og betur að koma í ljós um grimmd múslima gagnvart kristnu fólki og hef ég tilfinningu fyrir því að æðstu klerkar hafi ákveðið og gefið fyrirmæli um allan heim að eyða þessu villutrúarfólki sem ekki gengst við trú þeirra og sýnist mér til framtíðar litið að þetta geti orðið mjög hættulegur heimsfaraldur.
Jarðskjálftar munu halda áfram því miður á Atlandshafi og ekki ólíklegt að það verði einnig á Eyjahafi en þeir verða harðir.
Fyrri spá mín um að ekkert muni gerast varðandi  fjármálagjörninga á Íslandi Icesafe er óbreytt og getur fólk haldið ró sinni. Mesti slagurinn sýnist mér vera um að halda hér völdum allt annað sé aukaatriði því miður en þjóðin á síðasta orðið.

                                                           23 janúar 2009     

Já fjárfestar víða fá kjaftshögg vegna ákvörðunar Obama að setja bæði beisli og axlabönd á bankastarfsemi þar í landi eins og er í spá minni en til viðbótar mun þetta hafa mikil áhrif á markaðinn sérstaklega í Asíu en þar er stór eignalaus bóla um það bil að springa.

Verst er að eignasafn íslensku lífeyrissjóðanna erlendis munu minnka um milljarða fyrir utan allt annað en allt þetta mátti sjá fyrir en ekki veit ég hver les spilin fyrir þá.  

 Mér finnst eins og fjárfestar reyni að finna nýja staði til að minnka skaða sinn og Austur Evrópa og Rússland sem ég sé þar í myndinni en það verður ekki fast í hendi að þetta gefi þeim neitt í aðra hönd vegna óáreiðanleika bókhalds fjármálastofnanna sýnist mér.

Ekkert mun ske hér á landi falli Icesafe því Brown er fallinn og Cameron tekur við en veðhlutfall landsins mun lækka fljótlega um 1 flokk og gera hlutina enn erfiðari fyrir þá meira atvinnuleysi og fjárlagahalla.  Allir efnamenn landsins munu flytja til Swiss þar sem skattar eru þeim hagfeldari og um leið taka þeir fé sitt og flytja yfir sem gerir hlutina enn verri.

Verðmæti hlutabréfa í Evrópu mun halda áfram að falla og eins í Bretlandi og sér Brown að spilagaldur hans var púður eitt og skattpeningarnir fóru að stórum hluta í gríðarlegt tap hjá einkabönkunum sem hann lét yfirtaka fyrir skattfé og mun þurfa að svara fyrir það síðar.

                                                                  Viðbót vegna fréttar um Icesafe í kvöld

Skoðaði málin dýpra eftir þessa frétt og sú sýn sem við blasir er rétt en það hefur enginn áhuga á að hrófla við þessum samningi við núverandi ríkisstjórn þar sem þær stefna í tvær áttir í Evrópumálum og allra síst treysta þeir fjármálaráðherranum þótt sá fyrri hafi gert það.

Mér sýnist einnig að á síðustu metrunum geti brugðið til beggja vona sú hugmynd sem flygur um ráðuneytin hér heima að draga frumvarpið til baka og brjóta Stjórnarskrána með því gerræði en mikil óeining er um slíkt innan stjórnarflokkanna  hvort það skuli gert. Upplausn verður í báðum flokkum vegna málsins vitandi að hætta sé á uppþotum hér á landi í kjölfarið. 

 Það sem helst steytti á steini hjá Bretum voru viðvaranir sendiherra þeirra hér á landi vegnavæntanlegrar  komu sendinefndar en mér sýnist í þeim plöggum hafi verið afar viðkvæmar upplýsingar um báða ráðherrana og flokkast sem leyndarmál enda fór sérlegur sendiboði með þær út en ekki í póstpoka,
                              

                                                    25. janúar 2009
Já ég er ekki hissa þótt umboðsmanni Alþingis hafi nánast fellt tár á ákveðnum tímabilum við úrvinnslu á orsökum bankahrunsins og að hann leggi til að þjóðin leggi niður störf í 2-3 daga.
Fyrri sýn mín um fjölda þeirra sem hljóta þunga dóma er óbreytt en fjölgar þeim sem fá skilorð en verulega mun fækka á æðri stjórnsýslusviðum í ráðuneytum stofnunum þegar hlutur hvers og eins verður skoðaður.   Ég get ekki neitað því að mér sýnist að brjótast muni út svo mikil reiði almennings og er það í samræmi við gögn málsins en þau verða skelfileg yfirlestrar.   
                                                      28 janúar
Enn eru fimbulkuldar í Evrópu og met frá 1904 hefur verið slegið eins og ég var búinn að nefna hér að ofan.
Þær yfirheyrslur sem nú standa yfir í Bretlandi í beinum útsendingum frá þingnefndinni eiga eftir að hafa alvarleg áhrif fyrir Bretland þar sem færustu lögspekingar munu upplýsa að Tony Blair hafi endanlega tekið þessa ákvörðun vitandi að hún var ólögleg og engar samþykktir Sameinuðu Þjóðanna þar á bak við.  
Þetta mun hafa mikil fjárhagsleg áhrif í öllum hagkerfum því sambærileg rannsókn fyrir opnum tjöldum í USA þar sem fyrrum fjármálaráðherra og núverandi sæta þar hörðum yfirheyrslum
Ræða Obama sl.nótt á þinginu mun ekki hjálpa honum með áform sín þar sem fylgi hans hrynur niður.
Kina er í miklum vandræðum að koma böndum á hagvöxt sem mun slá öll fyrri met og birgðir munu hlaðast upp.  
Ég hef miklar áhyggjur af því sem koma skal hér á landi við uppgjör landsmanna við stórtækum þjófum sem hreinlega stálu sparifé landsmanna en vona að þetta gangi ekki eftir.             
                                                                 30 janúar 2010
          Bendi á spár frá 21 og 26 Nóvember 2009 sem eru að ganga eftir      
Ísland mun ganga í gegn um hamfarir í fjármálageiranum einkaaðilar sem og fyrirtæki og sýnist mér að hundruðir komi hér við sögu og þekkt andlit þar inn á milli en það er alveg óviðkomandi bankahruninu sem slíku.

Dómstólar verða keyrðir á kaf að óbreittu vegna fjölda mála sem koma þar inn og sýnist mér Baugsmálið smá mál til samanburðar að umfangi.
Upphæðir vegna svika munu hlaupa á hundruðum milljarða tengdu gjaldeyrisbraski og skattsvikum þeim tengdum.

Brown mun gera okkur tilboð vegna Icesafe fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu enda stutt í kosningar hjá honum sem hann mun tapa.
Breska þjóðin mun gera uppreisn við þingmenn vegna yfirheyrslu þingnefndar á Tony Blair fyrrum forsætisráðherra um Íraksstríðið þar sem ljóst er að Bretar voru aðeins að hjálpa Bush um að koma hernaði í gang sem ekki beindist að Bretlandi á nokkurn hátt.   
Mér sýnist að Brown muni þurfa að mæta fljótlega af sömu ástæðu.
Fjárkerfi Evrópu skelfur eins og ég áður nefnt og er óbreytt staða þar á bæ.
Obama er enn í vandræðum með þingið og sé ég ekki að hann keyri eitt eða neitt áfram heldur aftur á bak ef eitthvað er og Kina mun notfæra sér tækifærið sem þar skapast að keyra vörur sínar á markaði og fella gengi ríkisbréfa með því.    
Íslenska bankakerfið getur ekki gengið með 3 stórbanka og fjölda sparisjóða eingöngu á innlendum markaði og mun því koma til sameiningar 2 síðar á árinu eða byrjun 2011      
                                                                2 Febrúar 2010
Fjármálaráðherra missti út úr sér lykilinn sem staðfestir mína sýn varðandi Icesafe að ofsa reiði muni brjótast út í þjóðfélaginu. 

                                                      4 Febrúar

 Já því miður hefur það gengið eftir að fimbulkuldar verði áfram í Evrópu eins og spá mín gekk út frá og verður fram í fyrstu viku apríl en afleiðingarnar verða alvarlegar fyrir landbúnað með uppskerubresti eins og ég nefndi.

Stórrhríð eins og hún gerist best var í Danmörku í gær og Þýskalandi og mannfall hefur orðið töluvert það sem af er vetri og verður meira.

Kasakstan -52c Mongolia -49c Kanada -37c Rúmenia -32c Eistland -32c Litháen -29c Pólland -29c sem dæmi.

                                                        4 Febrúar

Skjálftinn er byrjaður á fjármálamörkuðum og á enn eftir að aukast á næstu vikum en Svíar þurfa að fara djúpt í vasana til að afskrifa 3000 milljarða veislulán til Austur-Evrópuríkja og enn er eftir stærri skellur.

Grikkland mun nánast leysast upp í óeirðum og mannfall verður en svo hart verður skorið niður í ríkisútgjöldum að almenningur þolir það ekki. Eldri borgarar munu þurfa að betla fyrir mat og öll laun verða lækkuð um tugi prósenta og eftirlaunaaldur hækkaður.

Svo gæti farið að Grikkland missti stjórn á fjármálum sínum til Brussel í apríl takist þeim ekki að sýna fram á alvöru niðurskurðar en þingið á eftir að samþykkja þessar sparnaðar aðgerðir en ríkisbréf munu snarlækka svo og hlutabréf í öðrum fyrirtækjum.

Portugal er næst í röðinni og þar koma stórir aðilar að með sparnaðartillögur ella fer fyrir þeim eins og Grikkjum og Spánn þar á eftir en verðfall verður einnig á ríkis og hlutabréfum í báðum löndunum.

Það sem sammerkt er með þessum löndum og fleirum er uppskerubrestur vegna kulda sem mun setja stórt gat í fjárlagaaðgerðir og atvinnuleysi enn aukast frá því sem nú er.

Matvöruverð mun rjúka upp úr öllu valdi vegna skorts og sýnist mér að sumir muni ekki eiga fyrir daglegum nauðþurftum.

Mér sýnist tilboð Craft matvælafyrirtækisins í Cadbury súkkulaðiverksmiðjuna á yfirverði verði til þess að hún verður flutt úr landi síðla árs 2011 eða ársbyrjun 2012 þar sem framleiðslukostnaður er of hár í Englandi en mun hagstæðari á öðrum markaðssvæðum Kraft aðallega í USA og hugsanlega munu fleiri fyrirtæki yfirgefa landið.

                                                                     8 Febrúar

Það er mun styttra í frjálst fall Evrópumarkaða en í fyrri spám mínum og mun alvarlegra og mun ekki breyta neinu hvað Seðlabankastjóri ESB mun segja menn munu ekki trúa því.

Rétt að menn hugi að sínum fjárfestingum á ESB svæðinu en þetta mun síða breiðast út alla leið til Asiu eins og flensa
                                                    

Já það er vindgangur í spákaupmönnum og toppunum hjá vogunarsjóðunum sem tapa stórt þessa dagana og verði þeim að góðu en þessa Talibana á með öllu að banna á mörkuðum.

Það mun litlu breyta hvað Seðlabankastjóri Evrópu segir lestin er lögð af stað niður fjallið og næsti viðkomustaður er USA.  Það er þú þannig með þessa himnasæng Evruna að hana er ekki hægt að lima í sundur heldur verður hvert land fyrir sig að skera fitulagið af útgjöldum hins opinbera eftirlaunum örorkubótum eitthvað sem við þekkjum en í Grikklandi er blóðið heitt og það mun renna um götur áður en langt um líður.

Grikkir misstu 18% af túristum við upptöku Evru og svipað ástand er í Portugal og Spáni túristarnir fara bara þangað sem ódýrt er.  Þarna ræður framboð og eftirpurn ríkjum eitthvað sem bændur ættu að hugsa um áður en þeir kaupa fleiri hús til útleigu því við munum missa túristana að mestu við upptöku Evru.

Matvælaverð mun rjúka upp á öllu Evrusvæðinu strax í lok þessa mánaðar og á endanum geta hinir fátæku ekki keypt sér í matinn grænmeti hrís og kjöt.

Húsnæðisverð mun falla meira í þessum löndum og fleiri byggingaverktakar og einstaklingar fara í gjaldþrot á næst á eftir bankar.

Svíar eru í mikilli hættu með sitt bankakerfi vegna lána til Austur Evrópu og gætu á endanum þurft að afskrifa yfir 5000 milljarða Evra áður en yfir líkur og hvaða ríki getur tekið slíkt á sig.

Obama er á algjöru skæni með sín risavöxnu þjóðarskuldir og þess er ekki að vænta að Kinverjar kaupi fleiri ríkisskuldabréf í bili af þeim og þá fyrst verður skellur á mega mælikvarða.  Singapor malasya eru einnig í hættu svo og Honk Kong en fasteignabólan þar springur fljótlega.

                                                      11 Febrúar

Já það gat nú verið að skyndihjálparteymið kæmi saman í Brussel vegna ástandsins í Grikklandi en mér sýnist fram í tímann að þetta muni hafa slæm áhrif á markaði vestan hafs og stærra áhlaup gert á Evruna eftir um 4 vikur og hugsanlega Breska pundið til að lækka rostann í Brown.

Þarna er fordæmi gefið sem ekkert annað ríki álfunnar gerir i stað þess að leita til IMF eins og allir bentu á. Þá eiga fjárfestar erfitt með að átta sig á þessu tvöfalda gengi innan ESB Bretar með pundið Svíar með sína krónu og Danir líka??   Af hverju skipta þeir ekki yfir í Evruna??

Lausnin á Icesafe er ekki á leiðinni nema í nösunum á ríkisstjórninni en þar á bæ sýnist mér að flokkarnir sigli hraðbyri í sitt hvora áttina.

Menn skulu halda vöku sinni á því að hrámeti eins og hveiti og korn tómatar og fleiri vörur hækki í verði á mörkuðum um 50-60% vegna uppskerubrests sömuleiðis borðvín en það gerir nú minna til.

Hér heima munu verkalýðsfélög snúa bökum saman og sýnist mér hart á móti hörðu og hér gæti skapast ástand eins og var á árunum 1951-75.

Jarðhræringar munu færast í aukana næstu vikur og mánuði og verða harðari sýnist mér gos gæti orðið á tveimur stöðum en tímasetning óviss.

                                                     15 Febrúar 2010

Mars apríl og Maí verða mjög viðburðarríkir mánuðir fyrir heiminn.

Kuldar verða áfram víða í Evrópu og fram í apríl með miklum fórnarkostnaði þar sem ökumenn virðast ekki hafa trú á vetrarhjólbörðum og því fer sem fer.

Viðskiptalíf um allan heim mun springa með hvelli fljótlega þar sem kommúnistaflokkurinn(ríkisleyndarmál)í Kína hefur gefið bönkum ákveðin fyrirmæli um að kaupa ekki að sinni ríkistryggð skuldabréf og mun þetta hreyfa hressilega við fjármálamarkaðnum sem veit ekki hvert stefnir og sala hefst til að lámarka skaðann.  Ekki bætir það taugakerfi fjárfesta að Obama ætlar að hitta trúarleiðtoga Tíbeta og reita þá rauðu enn meira til reiði með ófyrirséðum afleiðingum.

Dubai mun vera í enn alvarlegri stöðu en fyrir var séð og mikil hætta á falli Bresku bankanna öðru sinni vegna greiðslufalls en þeir hafa lánað þarna   ótæpilega og einkaaðilar sem ætluðu að kaupa draumaeignina hafa verið sviknir.

Danske bank verður einnig fyrir höggi og einn annar er þegar farinn á hausinn og sætir rannsókn fjármálaeftirlitsins þar í landi.

Mér sýnist að Grikkland verði skutlað út úr ESB síðar á árinu fyrir fylleríseyðslu sæki það ekki sjálft um aðstoð IMF en fyrri loforð ESB munu ekki standa þar sem Írar Portúgal og Spánn eru í stærri vandamálum en þar á bæ er orsökin á svipuðum nótum byggja og byggja en enginn kaupir eða getur selt.

Áður en það gerist munu verða gríðarlegar óeirðir þar í landi og ekki óhugsandi að þær breiðist út til fleiri landa en Bretland sýnist mér þurfa verulega fjárhagsaðstoð á svipuðum tíma þar sem Brown mun ekki ná endurkjöri og nýir aðilar vilja skera niður himinhá laun í opinbera geiranum sem slær öll met á Evrópskan mælikvarða.

Icesafe verður enn á brauðfótum sýnist mér og ekki komi til greina af hálfu Breta og Hollendinga að engir vextir verði greiddir og ekkert frekar aðhafst í málinu fyrr en við föllumst á greiðsluskyldu okkar sem er andstætt gildandi lögum.

Seinkun verður um hið minnsta 2 vikur á útkomu skýrslu rannsóknarnefndar sýnist mér og þá er rétt að opna kirkjur landsins eins og ég hef áður sagt.

Hæstiréttur mun ekki samþykkja nýlegan dóm Héraðsdóms um tengingu við erlend lán þar sem skuldari sjálfur hafi af frjálsum vilja samþykkt slíka skilmála og því sé ekki hægt að sjá að blekkingum hafi verið beitt.

                                                            19 Febrúar 2010
Íransforseti mun halda áfram áformum sínum og Bandaríkin muni ekki fá stuðning Kina í Öryggisráðinu til frekari aðgerða gegn Iran og hittast þar stálin stinn.
Mjög stutt er í alvarlegt bankahrun í USA sem veldur miklum usla.
Icesafe er á sínum stað en það mun akkurat ekkert gerast annað en hávaði á stjórnarheimilinu raddir koma upp vegna rangra upplýsinga til almennings um ábyrgð á innistæðum að við erum með sama pakka og Norðmenn en þar á bæ er mikið rætt um frumhlaup þeirra gegn okkur m.v.stöðu þeirra sjálfra.
Uppstokkun verður í liði VG sem er að gliðna í sundur líkt og Samfylkingin og við sjáum til hvað setur.
Ég er órólegur yfir þeim mikla titringi sem er á hafsbotninum rétt við Suðurnesin og áfram vestur fyrir jökul til norðurs en það hreyfir ekki við mönnum að hefja dýrar framkvæmddir beint yfir jarðskjálftasvæðinu.
Ég sé fyrir mér að þýstingsbreyting geti orðið á núverandi borholum verði skjálfti upp á rúma 6 á svæðinu sem er ekki langt undan og menn ættu að fara sér hægt og skoða botninn vel áður en lengra er haldið.
Annað í fyrri spám er óbreytt.
                                                               23 Febrúar 2010
Fjármálamarkaðir eru lagðir af stað niður hlíðina eins og ég sagði fyrir og lánshæfi Grikklands lækkað af Fits rating en það mun hafa dominó áhrif inn á markaðinn og því munu bankar falla eins og ég hef áður bent á í spá minni.
Þýskaland er ekki eins sterkt og ætlað var enda vantaði lykiltölur þar inn varðandi atvinnuleysi og hagvaxtarspá of há.
Bólan heldur síðan áfram til USA þá Asiusvæðin og kostnaður eykst.
Mér finnst eins og menn hafi farið óvarlega með fjárfestingar í Vogunarsjóðum og þar komi við lífeyrissjóðir en frá hvaða landi sé ég ekki en það verður skellur.
Það er mjög sérkennilegt að skoða undir Ísland og það sem þar er að gerast en menn hafa ekki áhyggjur af því og halda sínu striki en gætu átt von á því að afl virkjanna á Suðurnesjum minnkuðu þegar færslan í iðrum jarðar á sér stað.
Þjóðaratkvæðagreiðslan verður haldin og sem slík sé ég að hún mun hafa gífurleg áhrif ein og sér hjá öðrum þjóðum sem munu rísa upp og veita borgurum sinna landa sama rétt innan 5 ára.
Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af Icesafe það dæmi mun ganga upp um síðir og jöfnuður mun þar ríkja en áður en það skeður verða stólaskipti hér innanlands og annarsstaðar í Evrópu.
Þegar ég skoða Grikkland betur þá er þar upp á teningnum sama útrásin og hér en með meiri meðvirkandi áhrifum og ég hef sagt það áður að Svíar einir og sér munu tapa yfir 6000 milljörðum Evra vegna rangra fjárfestinga.
 
                                                  25 Febrúar
Einn af fremstu sérfræðingum heims í greiningu hagkerfa og sá hinn sami sem spáði bankahruninu 2008 hefur nákvæmlega sömu sýn og ég hvað sé í farvatninu miðað við viðtal við hann í MBL í dag.
Nokkuð merkilegt hvernig hann sér þessi dominóáhrif frá Grikklandi eins og ég sá það og má ég bara vera bærilega sáttur að hafa slíkan sérfræðing til að staðfesta spána mína.
                                                   27 febrúar 2010

                                              úr spá minni fyrir 2009.

Þar er einnig að finna spá um að stórt stykki á stærð við heila borg muni brotna af Pólnum og gerðist það en stærðin er talin á við ríkið Luxemburg og er nú á reki við strendur Ástralíu. og verði ekkert að gert með niðurbrot hans mun hann valda miklum usla í lífríki sjávar og loftlagsbreytingum eftir eitt til tvö rár.

Menn þurfa að skoða af hverju þetta stóra stykki brotnaði hvað er að ske þar á gríðarlegu dýpi.

Hamförunum í Chile er ekki lokið og nú eru risa haföldur á leiðinni til nokkurra borga þar sem hafsbotninn lyftist upp um allt að 20cm eftir því sem ég sé en hann er allur á hreyfingu. Ástralía og Hawai eru í viðbragðsstöðu en mér finnst eins og strandlengja USA frá Long Island að Californiu geti orðið fyrir risabylgu sem fari hratt yfir en vonandi gengur það ekki eftir.

Augu mín beinast einnig að Afríku og svæðunum í kring eða nálagt Kanaríeyjum en þar er eitthvað að ske á hafsbotni einnig.
    

                                                             4 mars 2017
Bið lesendur að fara yfir spána lið fyrir lið og skoða hvar þar er og hvað hafi þegar gerst í heiminum.
Grikkland er alveg á barminum sýnist mér Portugal Spánn og Ítalía og ef ESB pungar ekki út greiðslum fyrir þjóðarskuldum þeirra eru þau gjaldþrota.
Það yrði kraftaverk ef japan slyppi óskaddað úr kreppu sem er að bresta á í Asíu.
Við þurfum ekkert að óttast um Icesafe og næstu viku því að fólk í öðrum heimsálfum mun rísa á fætur og heimta fullkomið lýðræði svo að landið verður í sviðsljósinu.
Það væri ekki rétt að segja að það hylli undir betri tíma því að ég hef þegar ritað að það verður ekki fyrr en 2013 í fyrsta lagi en Steingrímur J verður ekki formaður síns flokks mikið lengur og Jóhanna Sigurðardóttir fer fyrst á heilsuhæli þegar hún lætur af störfum.
Hver sest við enda ríkisstjórnarborðsins í næstu ríkisstjórn verður........
Núna áðan kom á skjáinn hjá mér skyndilega að eitthvert baktjaldaplott á vegum ESB sé í gangi í reykfylltum herbergjum og Seðlabankans þar til að komast í kring um lög um beina styrki sem eru bannaðir innan ESB  en ég sé ekki í hvaða mynd það verður en við verðum bara að sjá til.
 
                                                                 12 mars
Icesafe er í lagi þar sem það er og okkur stafar ekki hætta af honum það verða aðrir sem leysa það mál heldur en við eins og ég hef áður sagt enda hafa menn í stærra samhengi farið að líta í eigin barm.
                                                                  15 mars
Niðurtaling á stærstu fjármálabólu án inneignar er að hefjast og mun hafa mikil áhrif um allan heim.  Verðlækkun á húsnæði fyrirtækjum lóðum mun verða meiri í Evrópu en Asiu en þar eru stór spurningamerki sem ég get ekki greint og varðar Kina.
Bretar eru um það bil að leggjast við hlið Grikklands í skuldafeni eins og ég hef áður minnst á en nú hafa fjármálatalibanar tekið skortstöðu um að fella fundið??
Það er eins og þeir vilji bæði sleppa og halda sínum fjármálageira innan viss ramma en það er sama á hvorn veginn þetta sveiflast áhrifin verða mikil.
Ég hef margoft áður minnst á harðnandi stíðsátök og mannfórnir og sýnist mér að þær muni færast í aukana við auknum hernaði Bandalagsþjóða á Arabaskaganum og breiðast út um heiminn líkt og stigið hafi verið á mauraþúfu með miklum ósköpum.
Jarðslkálftar víða um heim munu halda áfram og aukast ef eitthvað er og manntjón verður.
                                                                 Ísland
Það er eins og þjóðarskútan sé stödd á hringtorgi í bullandi umferð og komist ekkert áfram og túlka ég það svo að óeining stjórnmálamanna og óvissa sé framundan og ég hef áður sagt að ekki birti til fyrr en 2013 og er það óbreytt þar sem ég fæ ekkert annað á kortin.
Ekki munu bæta úr skák einskonar plástursaðgerðir ríkisstjórnarinnar með skuldamál sem eru handahófskenndar og án markmiða því mér sýnist að með þessum aðgerðum verði til tvær stéttir manna þeir ríku og þeir fátæku sem verða í meirihluta.
Icesafe er á sýnum stað vel geymt og sé ég ekki að Bretland og Holland gefi eftir og pattstaða verði með málið.
Mér sýnist Spánskt lið verða Evrópumeistarar í fótbolta allavega sé ég spánska fánann.
       
                                                         16 mars
Fuglaflensan er aftur komin á stað eins og ég gat um í fyrri spám mínum en nú verður hún mun skæðari finnst mér.´Hún er komin upp í Rúmeníu og aftur víða í Asiu og að þessu sinni er eins gott að halda vöku sinni því að hún mun stökkbreytast.

                                                               24 mars

 Lánshæfismat Portugal hefur verið lækkað um 1 stig en ég minni á fyrri spár frá 2009 þar sem þetta er inni og má segja þegar grannt er skoðað að við verðum samferða í rússíbanareiðinni niður með Evrunni og sýnist mér lítið í spilunum sem gæti hresst hana við þar sem mikil fjársvikamál eru í gangi í Evrópu eins og hér og teygja þau anga sína víða um heim og valda usla.

Ég hef áður nefnt Grikkland að það muni verða gjaldþrota og hefur sú spá ekki breyst þar sem ekki hafa komið í ljós þau gríðarlegu fjárhættuspilarar fóru höndum um ríkiskassann en mér sýnist að náðarhöggið verði AGS fyrir þá sem um leið eyðileggur trúverðuleika Evrunnar sem myntar enda varla hægt að ætlast til þess að þýskir skattborgarar taki á sig skuldir milljóna manna.

Portugal og Ítalia ásamt Spáni eru í fallhættu núna og hreint kraftaverk ef ESB tekst að halda andlitinu.

Það má segja heilt yfir að ótrúlegustu hlutir munu koma upp á yfirborðið víða um heim í innherjaviðskiptum sem mun valda falli á mörkuðum og stórskaða öll kerfi heimsins.

Obama er þegar lentur í vandræðum með heilsufrumvarp sitt eins og ég sagði fyrir enda hafa 14 fylkisríki stefnt alríkisstjórninni fyrir dóm þar sem þessi ríki munu verða gjaldþrota komi það til framkvæmda.

Efnahagsbati heimsins er hreint ekki að batna þrátt fyrir hátt gengi dollars sem gæti á einhverju tímabili farið í 140 kr hér á landi og aðrir gjaldmiðlar álíka og breytir engu hvað við gerum.

Landið okkar mun hristast áfram og ýmistlegt sem jarðvísindamenn eiga eftir að skoða en mér finnst eins og innrennsli fljótandi hrauns muni aukast frá svæði um 100 sjómílur vestur af Reykjanesi og koma upp fyrst í stað á Eyjafjallajökli en gæti allt eins komið fram annarstaðar þar sem rennslisgöngin víkka.

                                                    28 Mars 2010
                                                    Hænan og Gulleggið
Vistfræðingar hjá Hafró hafa rannsakað Íslandshaf norður af landinu og mælt þar hærri hitastig sem veldur því að aðalfæða loðnunnar kemur ekki að landinu og minna af loðnu í staðinn.
Það mátti búast við svona breytingum í lofti og láði vegna mikilla breytinga í andrúmslofti okkar af mörgum ástæðum og þar með hlýnun og kólnun jarðarinnar.
Fleiri svæði verða mun kaldari næsta vetur eins og ég hef minnst á áður og miklir hita í sumar og á næsta ári með þurrkum og uppskerubresti.
Við treystum á gulleggið afrá hænunni fiskafurðir en ég er ekki svo viss um að hægt sé að treysta á slíka tekjuöflun fyrir þjóðina nema næstu 3 ár hið mesta.

                                                             Föstudagurinn langi

11 apríl  fer að renna upp og verður þá boðið til fundar með Rannsóknarnefnd Alþingis en gæti dregist um nokkra daga.

Það verður mikil reiði í þjóðfélaginu eins og ég hef áður rætt um þar sem málið er svo stórt að nefndin tekur aðeins á yfirborðinu en hefði þurft 100 manna her í vinnu.

Kroll Assosiate hefur unnið fyrir skilanefnd Glitnis vegna tvöfalds bókhalds að hluta og gríðarlegra útlána og þar munu margir koma við sögu ekki bara topparnir og það liggur klárt fyrir að stækka þarf embætti sérstaks saksóknara um 100% ef rannsóknir mála eiga ekki að dragast í  mörg ár.

Þessi mál eru öll sammerkt svikum sem réttlæta ekki bankaleynd heldur hefði þurft að haldleggja með dómsúrskurði afrit af öllu bókhaldi bankanna sem myndi fylla nokkra flutningabíla.

Menn lifa ekki erlendis í ómældum lúxus eftir hrun án þess að hafa aðgang að fé úr földum sjóðum og kanski væri rétt fyrir skattrannsóknarstjóra að leita upplýsinga hjá American Express þar sem þeir eru flestir í viðskiptum reyndar á nafni skúffufyrirtækja.

Viðkvæmni okkar fyrir lögum og rétti hefur verið svo fótum troðin að það er brýn nauðsyn að aðrir en þingmenn taki ákvörðun um úrvinnslu skýrslunnar og hefði sem dæmi mátt bæta þar inn umboðsmanni neytenda sem er löglærður og einhverjum sýslumanni til viðbótar og gefa þingnefndinni meiri trúverðuleika.

Að hengja smiðina og bakarana um eitthvað smávægilegt er bara hkægilegt miðað við tjónið sem þeir urðu valdir að og líklega hefur engum verið boðin mildari meðferð á síðari stigum með því að upplýsa slóðana og hvar féð sé falið.

Fiskveiðiströgl verður á þingi og spurningin hver gerði hvað þar sem mönnum er löngu ljóst að búið er að veðsetja þjóðareign án nokkurra heimilda og engin ríkisstjórn hefur hreyft athugasemdum við það.

Innköllun þeirra mun örugglega skapa bótaskyldu vegna fyrri heimilda og veiðireynslu með leyfi yfirvalda og upphæðirnar verða háar.

Upplausn verður á þinginu og sé ég ekki að friður verði til þingloka og hugsanlegt að einhverjir varamenn verði að taka sæti á þingi.
Þegar ég horfi lengra fram í tímann þá finnst mér eins og að snúa þurfi niður skattkerfið fyrir atvinnureksturinn og heimilin þar sem ekki muni verða hægt að koma atvinnulífinu í gang aftur eins og við þekktum það ekki einsu sinni fjórðunginn.

Tekjumissir ríkissjóðs umfram áætlanir liggur nú fyrir en fer hljótt fram að þingi 12 apríl en menn munu hrökkva illa við en ekki sjá ljósið og hvað þurfi að gera án átaka. 

                                                                 4 apríl 2010
Það er nú smátt og smátt að koma í ljós hversu stórtækir svikahrapparnir voru innan bankakerfisins eins og ég hef áður rætt um og aðeins sé verið að kroppa skánina af.
Þegar upp verður staðið eftir um 3 ár mun verða tilkynnt um stærstu svikamyllu innan bankakerfisins í heiminum á þann mælikvarða og fleiri lönd emu nú að lenda í svipuðum aðstæðum og fletta ofan af svikamyllum.

Þetta er svo órtúleg sýn að allir hörðustu bankamenn sem ekki komu með beinum hætti að þessu fiffi munu fá tár í augun fyrir að hafa verið svo auðtrúa og tapa ærunni.  
Erlendir aðilar munu einnig verða með sínar sjálfstæðu rannsóknir á týndu fé og virðist sem svo að menn noti úrlendisrétt diplomata og eru enn að kaupa hér á landi hlutafé fyrir háar fjárhæðir á meðan aðrar skuldir eru ógreiddar.
Hvaða bankastofnanir skyldu hafa komið hér að máli?     

 

 

                                            Annar dagur páska
Enn berast fréttir af hörðum jarðskjálftum að þessu sinni í Mexico upp á 7.2 og mannfall en hann er óþægilega nálagt ströndum Bandaríkjanna þar sem sá haföldur flæða á land frá NY-Californiu en vonandi genga þær hamfarir ekki eftir.
Samt eiga eftir að verða harðari skjálftar á þessu svæði og víða og mér þætti sérkennilegt ef helstu sérfræðingar heims á þessu sviði sskoðuðu kortin sín ekki betur og finna út hvað er að og kanski sjá þeir með sínum fullkomna tækjabúnaði lekann úr innri möttli jarðar hér á landi.

                                                            7 apríl
Stóri skjálftinn sem ég átti von á upp á tæpa 8 kom snemma í morgun á 45km dýpi nálagt eynni Súmötru.  Þetta er að mér finnst ekki sá sem mun valda því tjóni sem ég sé en það vekur ugg hjá mér þegar hver stórskjálftinn á fætur öðrum geysar og 20cm rigning á sólarhring í Brasilíu sem kom af stað skriðuföllum sem ollu dauða 200 manna hið minnsta en heilu þirpin eru grafin í rústum.
Þá verða fellibyljir við eyjarnar og við strendur Bandaríkjanna mannskæðir og með þeim öflugustu sem mælst hafa frá upphafi.
Við eru hér á landi ekki hólpinn frá jarðskjálftum og rétt að hafa allan vara á sér.

                                                             9 apríl
Mikið gengur á í jarðskorpunni okkar og á ég þar við inndri möttul jarðar og aukinn loftþrýsting sem þegar hefur verið staðfest. Tvisvar hefur jörðinni verið hnikað til af sporbaug í seinna skiptið þegar skjálftinn stóri kom á Haiti en mér finnst ein og jarðkringlan eigi enn eftir að hnikast til annað hvort vegna gríðar jarðskjálfta upp undir 9 eða kjarnasprengju.
Gangi þetta eftir erum við að hora upp á allt annað veðurfar en heimurinn þekkir en á þessari stundu sé ég það ekki.
Ég hef áður talað um fjármálavafninga og röskun á hagkerfum og finnst mér stutt í einn slíkan sem breyti algjörlega öllum hagkerfum heims en mér finnst eins og það komi ekki eins hart niður á okkur .
Það er nánast ómögulegt að útskýra í orðum allt það sem muni gerast eftir að hún skellur á en þar koma við sögu markaðir með fasteignir og hlutabréf í Asiu USA Singapor og Kina.
                                                              12 apríl
Já það má líkja ástandinu á fjármálamörkuðum við það að hafa fengið adrenalinsprautu við að bjarga andliti ESB með Grikkland en er það svo?  Nei þegar ég horfi fram á veginn sýnist mér þetta vera eins og örlán sem nú er í týsku hér á landi en talan 2.5% kemur í huga mér sem hámarksvextir sem þeir geti greitt svo gríðarlegar eru skuldirnar.
Þarna á ég við að þeir hafa sjálfir verið að taka gríðar há lán á 7.5%vöxtum en lánalína ESB er 5% svona til að þið skiljið hvað ég á við.
Þegar lengra kemur fram á sumarið verðum mönnum þetta ljóst og spilaborgin hérna megin álfunnar hristist því óumflýjanlegt er að Grikkland verður gjaldþrota.

                                                               13 apríl

Þetta er allt að fara í gang loftbólan í Asiu er útblásin og mun springa eins og ég hef sagt  hér að ofan en fréttir síðan í morgun þegar Kínverjar birtu í fyrsta skipti upplýsingar um viðskiptahalla upp á rúma 7 milljarða dollara sem er áfall og nú getur allt gerst.
Á sama tíma finnst mér ein og fólk sé að flýja höfuðborg Írans Therean á næstu vikum og dreyfa sér um landið en ég sé ekki hvers vegna? 
                                                             
                                                                 19 apríl
Það verður ekki sagt að logn sé í landinu þegar hvert áfallið á fætur öðru dynur yfir þjóðina og æðsti maður þjóðarinnar hundskammaður fyrir að hafa rétt fyrir sér.
Ég hef mestar áhyggjur af ábúendum þarna á svæðinu um að þeir veikist andlega við að horfa á ævistarfið sitt eyðileggjast og una sér ekki hvíldar og er hugur þjóðarinnar hjá öllum þeim fjölskyldum.
Mér sýnist það það muni líða þó nokkur tími þar til lofthelgi víðast opnast aftur en þó er hætta á ferðum í efri lofthjúpi og má vera að í frostinu geti gervihnettir skoðað þetta skýjanet sem ég sé sem er afar fíngerð aska sést ekki með berum augum enhættuleg flugvélabúnaði.
Bergþéttingar undir jökli halda áfram að vaxa finnst mér og breiðir enn meira úr sér en aðrennslið er stöðugt frá Reykjanesi og því leitar farvegurinn í allar glufur sem eru á svæðinu en nákvæmlega hvað gerist og hvenær sé ég ekki en stendur ekki á sama.
                                                             Gleðilegt sumar
                                                              22 apríl
Nú þegar þótt flugbanni yfir Bretlandi lenti farþegaþota á leið frá mancester í öskulagi í fyrradag sem enginn sá en flugstjórinn fann öskulyktina og afl á öðrum hreyfli minnkaði þannig að hann snéri aftur við og lenti. 
Þessi aska eins og ég sé hana í háloftunum eru að hluta gleragnir þar sem það glitrar lítilsháttar á þær en ekki nægilega til að varast hana.
Því eru flugfélögin að fljúga upp á ábyrgð flugstjóranna væntanalega og lyktarskyn þeirra.

Það sem ég sé í kortunum er gríðarlegt fjárhagstjón fyrir hunduði þúsunda farþega sem greiða þurfa uppihald og gistingu sem snarhækkaði í hremmingum fólksins og þegar líður að Júní verður mönnum ljóst það efnahagstjón sem Eyjafjallajökull hefur kostað og er hættan ekki liðin hjá.
Ég sé ekki litið fram á veginn sömu bjartsýnina og ríkisstjórnin segir þar sem svo miklir óvissuþættir eru ekki teknir með og fyrri spár mínar óbreyttar um okkur.

Bretland er komið af fótum fram og aðeins tímaspursmál hvenær þeir lenda í röðinni með Grikklandi sem verður svikið og gjaldþrota í framhaldi og svo kemur Portugal Spánn og Ítalía í hruni eins og ég hef nefnt áður.
Hér heima verður kafað enn dýpra í fjármálasukkið og nýir áður óséðir hlutir koma upp á yfirborðið sem munu vekja undrun
Við skulum samt halda ró okkar og sjá ljósið við endann á löngum vegi þangað sem við stefnum.

                                                              24 apríl
það líður senn að öðrum gríðarstórum skjálfta og ég hef minnst á Californiuflóa upp á 9 en hann gæti líka orðið nærri Hawai en á þessu svæði að mér finnst og sjór ganga á land þegar botninn lyftist.
                                                              25apríl
Mikill órói er í mér og þrýstingur en stanslausir jarðskjálftar eru við Kistufell og Bárðarbungu og sýnist mér hraunið renna bæði ofan og neðanjarðar frá Eyjafjallajökli en eins til vesturs og hefur því dreyft sér eins og fljót.

                                                               26 apríl
Já ég hef sagt það áður í spám mínum að þetta verði sultarvetur fram til ársloka 2013 en Viðskiptaráðherra sagðist sjá ljósið í sl.viku en Fjármálaráðherra var heldur dapur á þingi í dag þegar hann upplýsti að gatið væri ekki 20 milljarðar heldur það sem ég taldi líklegra 100 milljarðar og er þá ekki allt talið til svo sem hrun í ferðageiranum og fleira.

Það er útilokað í minni sýn að þjóðin þoli svona álag til lengdar og mér sýnist í svörum ráðamanna að þjóðin verði svikinn og uppboð hefjist að nýju í október nkm. Það er það sem ég taldi mig sjá því miður og afar dapurlegt að ljúga að þjóðinni blákalt til að halda stöðu sinni.

Það sem ég sé núna er ekki gott og ég sagði í framhaldsbókun að henda mætti Fjárlagafrumvörpum 2010 og 2011 í tætarann og byrja upp á nýtt með afskurði allra hlunninda og gæluverkefna og koma fjölskyldum til hjálpar.
                                                                  28 apríl
Því miður mun það fara svo eins og ég spáði hér að ofan að Grikklandi verður ekki bjargað frá gjaldþroti og uppreisn og dregur með sér önnur lönd eins og Portugal og Spán en það er einnig inn í spánni.

Þegar ég skoða þetta dýpra núna er ekki útilokað að Bretland falli líka í ruslflokk enda gríðarlegar skuldir með löngum fjárlagahalla og þar þarf að skera gríðarlega niður og hækka skatta upp úr öllu valdi eigi þeir að hafa þetta af og sýnist mér ekki skipta máli hvaða skipstjóri sé þar í brúnni.
Fjármálajöfrar munu tapa stórt vegna Grikklands á ríkisbréfum og hlutabréfum sem hefur áhrif á alla markaði og dominóáhrifin sem ég minnist á hér að ofan er hafið.
       
                                                                      1 mai
Stór spá í vændum alveg á næstunni sem er stór í sniðum þegar ég er búinn að vinna úr tossamiðunum mínum       
                                                                       3 mai
Spár mínar varðandi Grikkland Spán Portugal og Ítalíu eru óbreyttar en svona brjálæðisleg lán ofan á hin ásamt tuga prósenta niðurskurði í velferðarkerfi þeirra er bara gálgafrestur enda verður þarna borgarastyrjöld   sem reyndar er byrjuð en mannfall verður.Innkoma í ríkissjóð þeirra með sköttum dugar ekki ferðamenn munu ekki koma í styrjöld og því verður enn áfall í ferðaiðnaði þeirra.  Þó svo að lánum hafi verið lofað eru þau ekki í hendi enn og mér sýnist að hrægammar í fjármálageiranum reyndi hvað þeir geta til að knésetja Evruna og Pundið og Írland er þá í meiri hættu.
                                                                   USA
Skammvinn gleði í smá uppsveiflu á eftir að hrynja aftur eins og spilaborg við þær lögreglurannsóknir sem hafnar eru á Ponzi svindli stórbankanna sem verða ljós þegar kafað verður dýpra eins og hér og verðfall verður um heim allan.
Þessi uppsveifla er að mestu til komin vegna hergagnaframleiðslu og neysluvöru fyrir herinn enda eru allar skotfæraverksmiðjur og niðursuða matvæla keyrð allan sólarhringinn og sent á átakasvæðin.
 
Obama mun reyna hvað hann getur til að koma böndum á bankana en það verður erfitt eða nánast ómögulegt
                                                                

Þá verða uppi borgarróstir í Arizona gegn nýjum lögum um ólöglega innflytjendur sem mun breiðast út um öll fylkin og California er enn gjaldþrota þar sem þeim mun ekki takast að loka fjárlagagati sínu frekar en önnur ríki þar sem eru á kúpunni vegna nýju heilbrigðislaga sem engir peningar eru til að hrinda í framkvæmd.

 Olíuslysið mun valda mesta mengunarslysi á friðartíma og einhverjar vikur eða mánuðir munu líða þangað til þeim tekst að loka holunni sýnist mér en þá koma til sögunnar Fellibyljir sem soga munu olíuflekkinn og dæla yfir þau lönd sem þeir fara yfir og enn meiri mengun.  Ég held að yfirvöldum sé þetta ljóst enda sá árstími sem þeir eru algengir á þessum slóðum.

Þetta er því alger pattstaða og að kveikja í olíunni til að menga andrúmsloftið mun valda gífurlegum skaða rétt eins og miklir skógareldar sem eiga eftir að geysa í USA á næstu mánuðum.

                                                              Bretland
Kosningar verða afar tvísýnar í Bretlandi og sýnist mér að Brown sé ekki tilbúinn að gefa eftir stólinn en gríðarlegur fjárlagahalli er þar um 110% af landsframleiðslu og í viðbót verða þeir að leggja skattfé í björgunarpakka til Grikkja og sýnist mér að uppþot verði bæði í Þýskalandi og Bretlandi og vantrausttillaga verði lögð fram á Angelu Mercel kanslara fyrir að fara gegn þjóðarvilja.
                                                                Asia
Japanski fjármálamarkaðurinn er fallvaltur vegna vandamála í stjórnkerfinu og stöðu gjaldmiðils þeirra og Kína mun ekki breyta sínu gengi sem eykur enn á vandamálið.
                                                           Vírusar
Mér finnst eins og ný bylgja af bráðsmitandi faraldri sé í uppsiglingu á næstu 2 árum en það er ekki influensa hún mun stökkbreytast með tímanum og fara af stað aftur en þessi er mun skæðari en ég átta mig ekki á hvers konar vírus þetta er enn.
                                                            Ísland
Eldgos munu halda áfram og færast í aukana með meiri ösku og sýnist mér að það hreinsunarstarf sem búið er verði til einskis ef vindátt breytist og flugumferð mun aftur truflast.

Sl.nótt dreymdi mig draum en þá man ég aldrei nema að eitthvað sé í aðsigi en mér fannst eins og ég væri í miðjum jarðskjálfta en hvar ég var staddur sá ég ekki en hugurinn hvarlar nú aftur að Heklutoppi og einnig að sv hlíðum Kötlu en mér finnst eins og einhver önnur rokefni komi þar við sögu gæti verið gas.

                                                    Veðurfar heimsins
Áður gerðar spár standa um fáheyrt veðurfar ofsa rigningar og flóð eins og í USA núna ofsa hitar og fimbul frost næsta veður en það sem er nýtt að andrúmsloft í mörgum borgum Asiu verða langt yfir hættumörkum vegna mengunnar og hæða í háloftunum sem verða þrálátar og mynda eiturský yfir stórborgum.  Þeta mun gerast annarsstaðar líka en sértækar borgir ekki taldar upp
                                     
                                                               8 mai
Fjármálamarkaðir hafa tekið mun stærri dýfu en ég sá fyrir á svo skömmum tíma en stutt er í finnst mér að áhlaup verði gert á Breska pundið til að fella það af vogunarsjóðum sem sjá fram á gróða.
Ekki snertir það mig mikið þótt eigendur danskra banka hafi tapað 700 milljörðum út af Grikklandi en það mun verða enn verra víða og finnst mér eins og landið okkar og litla krónan njóti verndar.

Ég hef áhyggjur af erlendum  fjárfestingum íslenskra lífeyrissjóða í því sem koma skal á mörkuðum.
Flug um alla Evrópu mun halda áfram að raskast og öskufall aukast til muna áður en stórgosið kemur en það verður stórt.
                                                                 10 mai
Jarðskjálftar munu halda áfram bæði hér á landi og erlendis en erlendis verða þeir harðari allt upp í 9 með miklu tjóni.
Björgunaraðgerðir ESB sýnist mér vera einn skuldavafningurinn enn og kemur við skarrgreiðendur á næsta ári.
Spáin um Grikkland er óbreytt en mér sýnist nýtt núna er Japan og hugsanlega USA vegna skulda og ekki ólíklegt að fallið verði hraðar en ég sá fyrir áður.
4 stórbankar munu falla vegna Grikklands sem ekki mun geta greitt skuldir sínar vegna tekjufalls og óeirða í landinu og mun þetta hafa alvarleg áhrif fyrir 15 lönd vegna innbirðis tenginga sýnist mér.
                                                                 14 mai
Ekki líkar mér liturinn á Suðurlandi eins og ég sé hann biksvart á allt of stórum svæðum til að hægt verði að búa þar.
Verðbréfamarkaðir eru að byrja stóra fallið sem verður djúpt og margir tapa stórt en vonandi hafa íslensku lífeyrissjóðirnir all sitt á þurru þótt mér sýnist talan 200 milljarðar í tap koma við sögu.
                                                                 17 mai
10 Desember 2009 setti ég inn spá fyrir því sem nú er að gerast með ESB og Grikkland en meira er í vændum og sýnist mér unsan af gulli geti á einhverjum tíma ná allt að 2000 dollurum og mikil hætta er á hruni dollars vegna þrýstings frá Kína sem tapar stórt úr fjárhirslum Seðlabanka þeirra.
Hvet fólk til að fara aftur yfir spána frá 2009 og bera saman við það sem af er þessu ári.
Bæti við spá vegna Sveitastjórnakosninga en þar fær Besti Flokkurinn 9 menn kjörna og svo sýnist mér að þeir taki slaginn um sæti á Alþingi og fái þar 39 menn kjörna.
                                                       18 mai
Mér finnst eins og augu mín beinist að Grikklandi þegar nær dregur að helgi og þar muni eitthvað gerast sem hugsanlega liði ESB nánast í sundur.
Þá er mannvonskan víða um heim að taka á sig nýjar myndir hryllings í voðaverkum og sýnist mér það muni enn aukast þegar líður á árið.
Fyrri spár mínar um Grikkland eru óbreyttar þeir munu aldrei geta greitt af lánum sínum og viðbótarlánum og því gjaldþrota.

Aðrar þjóðir munu fylgja fast á eftir og ef ný ríkisstjórn Bretlands sker ekki harkalega niður ríkisútgjöld mun verðbólgan þar rjúka upp og gengið falla enn meir en orðið er.
Hrægammar fjármála standa á hliðarlínunni eitthvað sem við þekkjum að grípa gæsina þegar hún liggur illa við höggi.
                                                            19 mai
Það kom skyndilega upp í huga mér við viðtalið við eldfjallafræðingin grímulausan við jökulinn orðið Steinlungu.
Þegar ég fór dýpra inn í þetta lunga var ég að sjá fram í tímann eins og kolanámumenn hóstandi út úr sér óþverranum sem segir mér að eftir einhvern tíma geti fólk setið uppi með lungnasjúkdóma væntanlega steinlungu og því skyldi ekki nokkur maður á þessu svæði vera grímulaus.

Þessir jarðskjálftar sem dynja yfir bæði á Suðurlandi og fyrir Norðurlandi og nokkuð harðir valda mér áhyggjum þótt sérfræðingarnir segi lítið sem skiljanlegt er en að auglýsa Suðurland sem paradís fyrir ferðamenn er eitthvað sem ég nefni ekki.
Ég hef líka haft hugann við Thailand og þau fólskuverk hersins að hafa leyniskyttur til að fella samborgara sína en yfir 40 hafa fallið og sem stendur loga tugir stórhýsa og litið fram í tímann verður þetta yndislega land lítið annað en Vietnam 21 aldarinnar um allt land.

Hætt er við að þetta geti breiðst út fyrir landamæri ríkisins og burtfluttir íbúar komi aftur til hjálpar.
Það eina sem getur bjargað þjóðum heimsins er alger stöðvun á fólskuverkum og koma sér til sinna heima. 
Það gagnar lítið að fara nakinn til að eyða vespuhreiðrum á erlendri grundu.
                                                      21 mai
Þjóðin mín er að komast á vonarvöl þar sem ráðamönnum hefur ekki tekist að horfast í augu við vandann á stjórnarheimilinu og því blæðir þjóðinni.
Það er stutt í að þjóðin geri uppreisn gegn aðgerðarleysi og vonleysi og kosið til Alþingis á ný.

Evrópa skelfur og hristist á fjármálamörkuðum eins og ég spáði en á bak við tjöldin vita menn að Grikkir geta ekki endurgreitt skuldir sínar og ferðamenn sem er aðaltekjulind þeirra mun ekki mæta frekar en hér á landi því miður og margir tapa stórt á nýjum dýrum fjárfestingum og allt í skuld.
Aðrar þjóðir munu tapa stórt en hvert prósentustig í falli á mörkuðum þýða trilljónir dollara hverfa.

Olíufatið gæti farið í 52$ á tunnuna en mengunin og bruninn á Mexico flóanum á yfirborðsolíu er glæpsamlegt athæfi og á eftir að koma okkur í koll síðar sérstaklega bikflekkirnir sem nú berast á allt að 6 km dýpi inn í vistkerfin og geta skolað á land hvar sem er í heiminum.
Spár um hækkun hitastigs sem er inn í spánum mínum voru staðfestar í gær af opinberum stofnunum eftir hnattmælingu með gervitunglum.
Sl.Mánudag fór hitinn í þorpi í norður Indlandi í 46c en heitasti tíminn er eftir júlí og augúst og gæti þá farið í 55c eins og ég spái.

Fyrri spár um truflanir á flugi í Evrópu allri eru óbreyttar.
Álverð fer lækkandi í heiminum og er nú um 2000$ tonnið og fer neðar sem þýðir milljarða verri afkomu ríkissjóðs.
Lífeyrissjóðirnir eiga ekki að koma nálagt virkjunaráformum með fé félagsmanna en það leggst illa í mig sem léleg fjárfesting nema að til komi útflutningur á raforku á sanngjörnu verði m.v heimsmarkaðsverði hverju sinni
                                                         22 mai
Pólland er nú að verða fyrir verstu flóðum í 160 ár og í samræmi við veðurspár mínar en þetta er ekki búið og tjónið gífurlegt yfir 400 milljarðar evra.
Bjartsýnismaðurinn Obama er hreint ekki komin úr klemmunni með sjúkratryggingar sínar þar sem 15 sambandsríki USA hafa stefnt alríkisstjórninni fyrir þau þar sem þau muni valda gjaldþroti þessara ríkja því fjárveitingar fylgdu ekki með.
Að koma böndum á Wall Street er ein og að snara villinaut á víðavangi einsamall og 2 útgáfur eru til að frumvarpinu og hvorug þeirra mun virka en hafa mikil áhrif á markaði til hins verra.
                                                           Ísland
Við þurfum að vera vel vakandi vegna móður náttúru og nú hefur verið staðsettur jarðskjálfti mitt í Hofsjökli sem leggst illa í mig og þetta svæði þarf að vakta vel þar sem eitthvað mikið mun ske eftir ekki langan tíma.
                                                             25 mai
Eins og ég sagði fyrir munu markaðir hrynja en það sem ég sé nú í kortunum er alheimskreppa í pappírseignum sem hafa víðtæk áhrif og er ég að tala um triljónir trilljónir dollara sem hverfa úr vösum fjárfesta ásamt bönkum sem voru 4 en verða fleiri þar sem lendingin verður mun harðari en ég sá fyrir áður meira lík 1929 nú.  Mér sýnist að við séum einangruð utan við þessa kreppu nema erlendar eignir lífeyrissjóðanna okkar en af þeim hef ég stórar áhyggjur þar sem markaðir verða svo laskaðir að þeir ná sér ekki aftur fyrr en síðla árs 2011 sýnist mér.
                                                              27 mai
Met office Breska veðurstofan gat út í morgun tölur um veðurfar í heiminum á þessari öld og er árið 2010 að slá öll met í kulda sl.vetur og hitamet í 3 heimsálfum á þessu ári.  Hitinn í Indlandi sl.viku var 46-50c og spáin fyrir þá næstu er sú sama og maður getur rétt ýmindað sér aðstæður í slíkum hitum.
Ástralía varð fyrir þessu sl.vetur en þá er sumar þar skaufþurrt á yfir 40% landsvæða og villt dýr komu inn í borgirnar í leit að vatni jafnt ferfættlingar sem snákar.Mér sýnist samkvæmt þessum uppl.frá Met office að spáin mín sé rétt og heitustu mánuðirnir eftir og síðan fimbulfrost víða næsta vetur.
                                                           Ísland
Spá OECD um 2.3% hagvöxt hér á næsta ári með allt að 17000 manns atvinnulausa er byggð á sandi sýnist mér en margt mun gerast hér eins og fyrri spár mínar sýna.
                                                              30 mai
Ég hef margoft áður lýst ástandinu á fjármálamörkuðum og horfum þar en það sem nú er að ske á næstu vikum og mánuðum hér í Evrópu verður það sama og í USA fjármálakerfið er svo fallvalt að hreinasta kraftaverk verður eigi að takast að bjarga Evrunni og grundvelli stærstu fjármálastofnanna Evrópu.
Svo svart verður ástandið að líkast er 1929 eins og ég hef nefnt áður en ég sé gullhring um Ísland sem segir mér að við verðum ekki fyrir ágjöf nema lífeyrissjóðirnir ef þeir hafa nú þegar ekki gert ráðstafanir en lánsfjármagn til stórframkvæmda mun ekki liggja á lausu.
Spánn er nú þegar óopinberlega kominn á sama stað og Grikkland og ekki langt í að Portugal og Ítalía fari sömu leið með lánshæfislækkanir eftir nokkurn tíma

                                                                4 júní
Spárnar vegna fjármálamarkaðanna eru um það bil að koma fram en rothöggið var Ungverjaland þar sem í ljós kom að fyrri ríkisstjórn hafði falsað hagtölur fyrir inngöngu í ESB líkt og Grikkland og er ástandið þar alvarlegt og markaðir tóku við sér samkvæmt því.
Þeir munu þurfa mikla fjárhagsaðstoð en spurning hver eigi að veita hana og um það verður deilt hart enda Spánn Portugal og Ítalía í álíka vandræðum.

Það er í raun lítil breyting á hagkerfum heimsins en innan 10 ára verður hagkerfi Kína orðið svo stórt að það mun nánast stjórna öðrum hagkerfum verði ekki gripið til aðgerða.
  Ofhitun er þar í öllum geirum sem hefur áhrif á verðbólgu víða í Asiu en það sem er nýtt að fólk leggur niður störf og gengur út sem þar er óþekkt.

Mér sýnist til lengri tíma litið að olíuslysið muni valda meiri umhverfisskaða um allan heim á næstu 5 árum og fiskistofnar og spendýr sum hver hverfa úr lífríkinu.

Stríðsrekstur og hryðjuverk munu snaraukast og meiri grimmd færast í þau og sýnist mér stíð yfirvofandi með skelfilegar afleiðingar og mannvonskan verður alger.
Eitthvað mun gerast síðar á árinu í heimi Múslima sem fær þá til að rísa upp um allan heim til stuðnings og jafnvel hermdarverka.

Litla landið okkar er ekki laust við náttúruhamfarir því miður og 22 júlí er inn í kortunum af einhverjum orsökum sem mér eru ekki ljósar á þessari stundu.
Öll þessi málaferli og ákærur sem verða á þessu og næstu 2 árum verða þess eðlis að þau munu setja brennimark á margar fjölskyldur en einnig sýnist mér erlendar þjóðir fara í ákærur við suma af þessum bankamönnum og þau mál rekin fyrir þeirra dómstólum óháð okkar.
Merkur maður verður veginn í heiminum úr launsátri en hann er ekki tengdur hryðjuverkahópi.
Styrkur Bin-Ladens mun styrkjast þegar líður á árið enda nægt fé til að viðhalda þessu stríði og sumt komið frá Vesturlöndum sem koma mun í ljós síðar.
Haustið og næsti vetur og reyndar alveg fram til ársloka 2013 er með óbreittri spá frá minni hendi þrátt fyrir tölur ríkisstjórnarinnar byggðar á sandi.
                                                      24 júní 2010
Ég hef áður sagt til í spám mínum um að vatn á Íslandi sé gullígildi og hefur það nú verið staðfest af opinberum aðilum að Ísland sé mesta forðabúr drykkjarvatns í heiminum og verður okkur meira virði en allar oliulindir.
Lönd í Asiu glíma mörg við mikla þurrka á meðan ofsa rigningar og flóð sem hafa orðið miklum fjölda manna að fjörtjóni.

Þá finnst mér eins og nýhafið fellibyljatímabil á Atlandshafi muni verða mun harðara en áður hefur verið vegna breytinga á loftslagi og sjávarhita.
Evrópulönd munu mörg hver glíma í sumar við mikinn vatnsskort og hefur England orðið verst úti þótt heitustu tímabil séu eftir og slæmt ástand skapast.

Mjög sérstakt ástand er að skapast í heiminum tortryggni hótanir þjóða sín á milli um hernað eða þvinganir sem aðeins munu leiða til meiri spennu og hörmunga fyrir íbúa viðkomandi landa.

Þá sé ég ekki að hryðjuverkum Múslima gegn eigin fólki muni linna fremur færast í aukana og hangir þetta saman við sértrú innan Islam að aðrir séu betri en hinir og séu réttdræpir ásamt kristnum hvar sem til þeirra næst.
Hvað skyldi svona fólki ganga til að slíkum voðaverkum?
                                                                   Evrópa
4600 milljarða neyðarlán til Portugal var það sem ég sá í spám mínum en að þetta sé á 5.2% vöxtum frá ESB átti ég ekki von á en þeir munu þurfa meira fé ásamt Grikkjum sem hafa ekki séð botninn í örbirgð enþá.

Þar á bæ finnst mér eins og fyrri ríkisstjórnir hafi verið á fylleríi í eyðslu í allskonar munað og margt slæmt á eftir að koma í ljós þegar endurskoðendur ESB sem eru þar núna gefa sýna skýrslu enda er ríkisbókhaldið gegnsýrt af mútugreiðslum og rangfærslum.

Spánn mun fljótlega þurfa sambærilega aðstoð frá ESB sem er í raun skattfé aðildarþjóða en þeir munu einnig lenda í vandræðum þar sem atvinnuleysi í opinberum tölum nálgast 21% sýnist mér en er meira.
Þeir eru ekki að falla greiðslufalli fjölskyldna á húsum sínum og sópa þessu undir teppið sýnist mér.
                                                                    ASIA
Kínverjar eru búnir að koma sér í slæma stöðu með gjaldeyrisforðann sem fyllir heilu vöruhúsin í reiðufé og bakslag kom í seglin varðandi myntskráningu þeirra sem mun hafa alvarlega keðjuverkun víða um heim.
                                                                   USA
Obama mun enn lenda í stórum vandamálum sérstaklega gagnvart öðrum þjóðum með afskiptum sínum af gengi mynta þeirra og útflutningi sér í hag en um leið mun koma upp á yfirborðið fölsun á þeirra eigin fjárlagahalla þar sem stórum hluta skulda sambandsríkja þeirra er haldið utan við uppgefin opinbera hallan svo nemur tugum prósenta í mínus svo og einhvað tengt húsnæðislánum og bókhaldi því tengdu sem sigla mun upp á yfirborðið fljótlega.
                                                                  25 júní
Við skulum hugsa hlýtt til Grísku þjóðarinnar þar sem nú hafa opinberar stofnanir metið það svo að 70% líkur séu á þjóðargjaldþroti og fleiri gætu fylgt á eftir og vísa ég í spár mínar hér að ofan.

                                                             26 júní
                                                       Tákn á himni
Mér er sagt að forsmekk af því sem koma mun 21.12 2012 muni verða sýnilegt jarðarbúum í einhverju tákni á himni alveg á næstunni en ég veit ekki um dagsetningu og síðan aftur fyrir miðjan Júlí en þá sýnist mér verða bara myrkur??  Vona að ég hafi skilið skilaboðin rétt.

                                              Veðurfar 26 júní
29c stiga hiti var kl.1300 í dag í London og svipaður hiti næstu 2 daga og sýnist mér miðað við hitana í Carío 49c og 52c í dag þá sé þetta að ná þeim hæðum sem ég sá fyrir allt að 55c á sumum stöðum við sérstakar aðstæður.
Ég hef áhyggjur af þessu þar sem næstu 90 dagar eru þeir heitustu á árinu bæði í Evrópu og Asiu en hér heima eiga hitamet eftir að falla í júlí og ágúst sýnist mér.
                                                 Ísland
Það eru að gerast mjög þéttir jarðskjálftar á nánast sama blettinum sunnan við Kambana og í Ölfusi og norður úr en ekki múkk frá vísindamönnum.
Ég tel rétt án þess að hræða neinn að fólk hafi andvara á sér taki til vatn á flöskum og nauðsynlegan fatnað í handtösku tilbúið næst útidyrum ef yfirgefa þaf heimili sín skyndilega.
                                                         2 júlí
Verðbréfamarkaðir eru á fallandi fæti um allan heim eins og ég sagði fyrir en USA gæti orðið fyrir miklum skell á fjármálasviðinu en Obama hefur ekki komið hreint til dyranna.
Mér sýnist að húsnæðismarkaðir fylgi fast á eftir víða um heim en fjárfestar eru á flótta með sitt fé.
Merkel kanslari Þýskalands er á brauðfótum enda mikil andstaða við hennar gjörðir til bjargar öðrum og meiri skatta á þá sjálfa.

Spár um Grikkland Portugal Spán og Ítalíu eru óbreyttar frá fyrri spám.
Jarðhræringar hér heima halda áfram og munu færast í aukana fljótlega og líklega á fleiri en einum stað á landinu og sýnist mér skemmdir verði á þjóðvegum svo sem Keflavíkurvegi Elliðaárbrekku og Suðurlandsvegi vegna jarðskjálfta en ekki manntjón en einhverjar skrámur.

Þá er sýn norðan Eyjafjallajökuls og áfram norður úr ekki fögur því mér finnst eins og gjá opnist og einhver óskapnaður komi þar upp en hvenær í ósköpunum þetta verður er ekki hægt að segja til nákvæmlega en fyrri viðvaranir eru í fullu gildi.

Gos órói er ekki yfirstaðinn í jöklum landsins því miður og einnig er hafsbotninn NNV af Húsavík í sjónmáli hjá mér og hafalda þegar botninn opnast þar.

Mér sýnist á kortum veðurstofunnar nú í morgun eftir rólega nótt að allt sé komið á fullt aftur frá Reykjanesi og norður úr á þessum slóðum sem ég nefni hér að ofan.

Eitthvað alvarlegt mun ske í fyrstu 2 vikum Nóvember 2010 erlendis og tengist stríðsrekstri en ég sé ekki hvar í augnablikinu.

                                                              9 júlí
Mikil mannvonska er meðal Múslima um allan heim og sýnist mér eins og heilagt stríð sé hafið eftir ákall frá Austurlöndum en þar ganga menn innan um konur og börn sjúkrahús og skóla og sprengja sig í loft upp með miklu mannfalli.
40-60 manns á dag gegn eigin fólki sýnir að heiftin er gríðarleg og þeir sem verða fyrir þessum ósköpum er saklaust fólk.
Þeir hafa kveikt í flóttamannabúðum í Noregi og lagt á ráðin um mikil hryðjuverk á Vesturlöndum
Mér sýnist að með tímanum verði þessi þjóðarbrot aðskilin frá umheiminum sem þeim er ekkert heilagt annað en Sharia lög Kóransins.

Ef fólk hugsar hvernig má það vera að menn klæðist sprengjuvestum drepi sjálfa sig og aðra? 

Hvað hefur komið fyrir þetta fólk andlega?  Linnulaus áróður um betra líf hinum megin en þeir sem þetta stunda hafa verið afvegaleiddir því þeim munu þurfa að gera grein fyrir verkum sínum almættinu og horfa á misgjörðir sínar.

Þessir aðilar munu ekki fá blessun hans og vísa ég í greinina Mynt Kærleikans sem er hér á heimasíðunni sem lýsir farvegnum yfir.

Það verður engin breyting á hitafari og þurrki í heiminum en það mun ekki duga til að fá menn til að hugsa um ástand andrúmsloftsins fyrr en um árið 2050 þegar ljóst verður að matarskortur verður yfirvofandi um heim allan vegna fólksfjölgunnar.

Kína mun þurfa landrými til viðbótar á stærð við Evrópu þar sem mér sýnist að fólksfjölgun þar verði talin í milljörðum á þessu tímabili.

Þegar ég horfi heilt yfir heiminn sýnist mér að engin friður sé í námd og frekar hætta á einhverju voðaverki sem muni leggja þúsundir að velli en dagsetningu eða ár sé ég ekki.

Spá um fjármálamarkaði er óbreytt svo og spá um atburði hér innanlands.

                                                           15 júlí 2010
Búinn að hugsa í allan dag hvort að ég ætti að setja inn sýnir af vinnublöðum mínum frá í morgun?

Þurrkar í heiminum eiga eftir að harðna vegna aukins hita og hunduði milljóna manna verða án fæðu og vatns og er það nú þegar komið á alvarlegt stig í Afríku og Afganistan og breyðist hratt út.

Verðlagning korns og aldins mun hækka mjög mikið vegna skorts á framboði og þar með talin hrísgrjón og næsti vetur verður skelfilegur víða um heim.
Það verða styrjaldir ekki bara á einum stað heldur allt að þremur og mikið mannfall í heiminum og þó fjarri Vestur Evrópu

Hitar eiga eftir að hækka enn fram á haustið og næsti vetur víða mun ná nýjum hæðum með fimbulfrostum og hríðarbyljum víða og í Evrópu en þó finnst mér veturinn hér verða í meðallagi.

Fjármálakerfið er og verður allsstaðar eins og rússnesk rúlletta en 2013 munu Bandaríkjamenn fá skell við skuldauppgjör fjárlagahalla.

Landið okkar lítur út eins og víbrator allt á hreyfingu og ýmislegt eftir að gerast því miður ofan á allt annað en ríkisstjórnin mun veðja á rangan hest í sínum ákvörðunum og sýnist mér ekki ólíklegt að allir íbúar landsins geri uppreisn á einhverjum tímapunkti.

Þá er heldur ekki útilokað að lokað verði fyrir erlendar fjárfestingar þessu samhliða með gjörðum ríkisstjórnarinnar og OR mun fá mikinn skell 2011.

Raforkunotkun í Evrópu mun rjúka upp úr öllu valdi í sumar og næstu ár vegna þessara hita og fólk fær sér kælibúnað í hýbýlum sínum og stofnunum en þetta vviðbótar rafmagn er bara ekki til í sumum löndum og það gætum við nýtt okkur ef menn setjast niður og sjá hlutina í réttu ljósi.

                                         Miðsumarsyfirlit 27 júlí
Ég hef miklar áhyggjur af þessum gríðarhitum sem ég spáði fyrir sl.haust og í byrjun þessa árs en þeir eru verri en ég taldi mig sjá fyrir meðal annars í Moskvu svo norðarlega en þar eru íbúar að stikna 35c viku eftir viku og gæti farið í allt að 40c í dag.   
Vitað er að yfir 100.000 ferkm.af hveitiökrum eru ónýtir vegna þurrka sem leiðir til atvinnuleysis og hækkandi hveitiverðs á mörkuðum nokkuð sem ég spáði um en þetta mun verða víða svona í Evrópu.
Norskir bændur hafa þurft að lóga nautgripum sínum þar sem ekki verður nægur heyforði fyrir næsta vetur þar sem ekki hefur ringt jafn lítið þar um slóðir frá því mælingar hófust.
Verð pr.heyrúllu hefur rokið upp úr öllu valdi.
Vetursetan verður álíka öfgafull en ég hef sagt að Ísland verði matarkista norðursins og mun það líklega ganga eftir 2011-2012 þegar hitar verða enn meiri 2011.
Vísindamenn hljóta að koma sér saman um harkalegri mengunaraðgerðir en fyrir eru ef þjóðir heims eiga að lifa þetta af til framtíðar.
                                                             3 ágúst
Við skulum hafa augun opin fyrir því sem er að gerast með sólina og því sem á eftir að gerast síðar á árinu.
   3 Ágúst
Þegar ég ræddi um tákn á himni átti ég sannarlega ekki von á sólgosi en þó var það tengt segulsviði jarðarinnar.

Þegar ég hugleiddi inn á þetta fyrirbæri þá varð mér satt best að segja ekki um sel þar sem seguláhrif jarðarinnar munu snar aukast á næstunni sem er slæmt fyrir næma sem finna þetta greinilega og gæti orsakað vanlíðan .

Ég bara veit hreinlega ekki hvernig ég á að lýsa því sem ég sá og þau áhrif sem þetta mun hafa en allt tengist þetta andrúmslofti jarðarinnar sem mun koma í ljós.
Breytingar gætu orðið á innri þrýstingi möttuls jarðarinnar og myndað vacum sem gæti dregið úr olíuframleiðslu á næsta ári.

Hitinn mun hækka og frostið mun aukast víða um heim á næsta ári miðað við nú uppskerubrestur á öllum tegundum landbúnaðar niðurskurður á mjölkurgripum víða og miklar öfgar í veðri.

Mér sýnist að þessi áhrif muni ekki verða svo stórkostleg svona norðarlega en Asia og Ástralía verða illa úti og tíðni húðkrabba mun slá met í fjölda því miður þar sem ozonlagið mun þynnast meira á þessu svæði.

Ég hef áhyggjur af milljónum manna sem munu svelta heilu hungri í Afríku og víða og meira að segja í USA verður fólki hent út á götu sýnist mér þar sem atvinnuleysisbætur þar eru aðeins greiddar í 12 mánuði og engin framfærsluskylda sveitarfélaga en það er á niðurleið áfram eins og ég spáði þrátt fyrir sjónauka glæframanna á peningamörkuðum sem munu fljótlega fá skell og hann stórann.

Hér heima mun áfram verða jarðskjálftar en nákvæmlega hvar og hvenær veit almættið eitt en þeir verða í skorpum.
Ég talaði áður um að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af Icesafe og er það óbreytt.
                                                                        9 Ágúst
Ég var áður búinn að setja í spána svartar auðnir með hvítum skellum vegna kjarnakleifra efna og þegar ég horfi á fréttir frá Moskvu um að yfir 150 þúsund ferkm séu brunnir kemur upp ný staða hjá þeim

Tré sem áður höfðu mengast af kjarnaúrgangi vegna Tjernóbyl slyssins eru nú að brenna og kjarnaefnin komast aftur í snertingu við andrúmsloftið þar sem þau brenna ekki skapar enn nýja hættu.

Mér sýnist litið fram á veginn að Rússar verði að fá aðstoð utan frá til að vinna bug á þessum bruna sem breiðist hratt út en og stefnir á Moskvu og er ekki útilokað að rýma þurfi úthverfi borgarinnar á einhverjum tímapunkti.
Mér sýnist að þetta geti endað með ósköpum vegna þjóðernisstolts og tregðu í stjórnkerfi þeirra
                                                               Pakistan
Ástandið þar er skelfilegt og á næstu 4-8 vikum á það enn eftir að aukast og heilu byggðalögin hverfa undir vatn en vitað er um 1500 látna en mun fleiri hafa skolast í burtu og finnast síðar.
                                                                 Indland
Mér sýnist að Indland geti orðið fyrir verulegum búsrifjum vegna ofsa rigninga og miklum hitum. 
Hitinn í Bagdad var 51c á opinbera mæla í morgun sem þýðir 55-58c undir berum himni eins og ég taldi mig sjá fyrir.

N-Kórea er fyrir augum mér og sýnist mér tugir þúsunda vera að deyja úr hungri og er vitað um það en enginn leggur til atlögu við ríkisstjórnina.

Fólk sýnist mér hafa á sl.vikum étið rottur og skordýr til að draga fram lífið en enga aðstoð er að fá frekar en í Darfúr þegar ég horfi þangað á milljónir á smá bletti í auðninni algerlega upp á hjálparstofnanir komið.
                                                         11 Ágúst
Á jóladag 2008 hér að neðan setti ég inn sýn um að í apríl 2009 myndi gjósa upp farsótt og hefur það nú gerst í svínum í Mexico og er gefið upp að þegar hafi um 1000 manns smitast og talsvert mannfall.
Ég er búin að skoða þetta afbrigði influensunnar og sýnist að 3 mismunandi dna afbrigði sé að ræða sem þýðir að fiðurfé mun blandast saman við þennan ófögnuð og úr verði firnasterkt afbrigði flensunar þegar líður fram á árið en hún mun breiðast hratt út um Mexico og síðan um öll fylki Bandaríkjanna en fyrsta Evrópulandið verður Bretland.
Það er betra að hafa allan vara á þessum ófögnuðu þar sem hún er mannskæð og margir munu falla sem ekki eru með 100% líkamlega heilsu
.

Ofangreint er úr spá minni 2009 en þetta flensuafbrigði gæti hæglega verið ofurbaktería sem þegar hefur kostað 50 manns í Bretlandi sjúkrahússvist en hún hristir af sér öll sýklalyf sem til eru í vopnabúrum og gæti hæglega stökkbreytt öðrum saklausum í lífshættulegar.
Þetta afbrigði hefur greins í fólki sem nýkomið er frá Indlandi og Pakistan.
Hún hefur greinst í Canada USA og víða og úr því að upprunalandið eru hamfarasvæði flóða og skelfinga má búast við að heimafólk sé einnig smitað. Það er því varla ofsagt að sýn mín þá veldur skelfingu hjá læknum vegna dna samsetningar og varnarbúnaðar bakteriunnar.

                                                                              14 ágúst
Náttúruhamfarirnar í pakistan aukast enn og opinberar tölur segja 1600 látna en 20 milljónir í hætt þar af 6 milljónir sem eru innikróuð án matar og drykkjar og Kolera hefur skotið upp kollinum.
23000 börn eru í hættu bara á einum stað án matar veik og hópur vanfærra kvenna sem ekkert bíður nema dauðinn berist ekki hjálp.
Þessar tölur eru bara fyrir þetta land en Kína sýnist mér að sé í gríðarlegri hættu næstu vikurnar vegna aukningar á monsún rigningu sem ekki hefur sést áður.
Þar eiga aurksriður eftir að koma og valda gríðarlegu mannfalli og tjóni og sýnist mér flóðvarnargarðar muni ekki halda.
Þetta er bara grátlegt allt saman og mér sýnist að hjálpargögnum verði stolið í miklu mæli vegna skipulagsleysis á flóðasvæðunum og lendi ekki hjá nauðstöddum.
Skemmdir á lifibrauði þessa fólks í Pakistan er áætlaður 1 milljarður dollara
Skæruliðar herja á landsmenn sem aldrei fyrr í miðri neiðinni og mannfall verður.
                                                         18 ágúst
Bandarískir vísindamenn hafa nú blásið algerlega af sigurorð framámanna með olíumengun í Mexicoflóa þar sem þeir hafa fundið olíuslikkana á talsverðu dýpi og því muni líða áratugir að þetta hreinsist ef það gerist þá nokkurn tímann.
Ég sá fyrst þessa slikka þykka langa ormlaga á um 1 km dýpi en þeir eru líka á hafsbotni og hafa nú þegar numið land í Argentínu á ströndum þar og ferðast líka annað.
Hulunni verður mjög fljótlega svipt af fjármálamörkuðum í Evrópu eins og ég áður talað um þar sem ESB Seðlabankinn hefur verið að veita neyðarlán til hægri og vinstri og bjarga bönkum á brauðfótum þótt talað sé um blóm í haga.  Tómt Bull.
                                                        28 ágúst
Staða fjármálamarkaða er óbreytt frá því hér að ofan en hringurinn er að þrengjast.
N-Kórea er nú nánast matarlaus og skýrir ferð einræðisherrans til Kína en mér finnst eins og að ráðamenn þar séu orðnir þreyttir á vælinu í honum og setji honum afarkosti.
Bandaríkin eru að nálgast þann punkt að hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til stríðsreksturs og háværar raddir kjósenda um heimköllun gerist háværari með hverri vikunni sem nær dregur að kosningum.
                                                         Ísland
Því miður eru fyrri spár óbreyttar um gjásýn á hagsæld hér heima og munu skattar þurfa að hækka um tæpa 15 milljarða en ekki 10 eða skera meira niður því bókhald ráðuneytisins er líkt og föllnu bankanna að hæstu skuldatölur eru þar ekki inni.
Uppsagnir í einkageiranum munu halda áfram þar sem ekkert stórverk mun komast í gang og peningamenn ytra munu ekki standa í biðröð við landamæri okkar frekar en N-Kóreu .
Því verður haustið og veturinn harður á heimilin eins og ég hef áður sagt og fer ekki að rofa til fyrr en 2013 í fyrsta lagi.


» 59 hafa sagt sína skoðun

01.02.2010 17:39:54 / heilun

Ótímabær fósturlát

Á morgun verður messa vegna ótímabærra fósturláta sem haldin er árlega í minningu þeirra.
Hvað verður um þessi fóstur eftir að þau fara úr nóðurkviði þá er því til að svara að innri litli líkaminn fer upp þar sem nákomnir ættingjar annast uppeldi þeirra í ríki Guðs.
Margar konurnar sem hafa komið til mín hafa fengið heimsóknir þessara barna í fylgd langömmu eða afa og hefur þetta alltaf reynst rétt.  Ekki er um fundi að ræða heldur til að staðfesta fyrir konunni í sorg sinni að lífið heldur áfram hjá þeim hinu megin og á endanum sameinast þau.
Hugur okkar allra verður með þessum konum á morgun og þær eru einnig velkomnar í Bústaðakirkju Mánudaginn 6 September kl.20.00

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2009 09:14:38 / heilun

SNU Healing Commity í Englandi

Það var dálítið sjokk að koma á þetta lokaða námskeið í transheilun innan um alla þessa reynslubolta 25 stk og ekki batnaði það þegar minister Cris Denton stjórnandi byrjaði með þessum orðum að við værum að gera samning við þá sem við vinnum með óbrjótanlegan og þeir sem ekki samþykktu það gætu gengið á dyr hér og nú.Ups.

Þetta námskeið var fyrir mikla reynslubolta en þetta var eins og að hafa bara próf á fólksbíl og fá svo lykkla að 60 manna rútu og gjöra svo vel að aka af stað án þess að vita haus né sporð á ökutækinu he he.

Hvað sem því líður þá átti að splitta hópnum samkvæmt dagskrá upp í tvo 13 manna hópa eftir því hvað hver og einn væri genginn á þróunarbrautinni en eftir fyrsta daginn tilkynntu Minister Cris Denton og Minister Kathryn Grundy að dagskránni hefði verið hennt þar sem í fyrsta skipti á þeirra kennsluferli í  45 ár  væri ekki þörf á slíku með þennan hóp  þar sem samstilling hefði tekist á fyrstu klst og það hefðu þau aldrei upplifað áður og þau nánast hoppuðu af gleði því nú væri hægt að setja jarðýturnar í gang og hefja fulla vinnu.
Þau eru í forsvari fyrir alla starfandi miðla og heilara vegna réttindaöflunnar þar

Með vinnu á ég við að heil vika frá morgni fram á kvöld fór bara í tengivinnu á öllum sviður hvers og eins rétt eins og að blása út kransæðar og því er varla hægt að lýsa með orðum.

Fyrst þurfti að fara í gegn um innri líkamann og horfa þar á spegilmynd af sjálfum sér og áfram inn á tilfinningasviðið og að lokum kjarnann.

Ég fór með hópnum í djúptransvinnu sem þau kalla altered states þangað sem ég hafði aldrei komið og hef þó farið djúpt en allt í einu sá ég glitta í skært grænt ljós fyrir neðan mig þangað sem ég fór og var þar kúla stór og mikil emerald grænt sem hvítt ljós skein á og þar var ég baðaður í því ljósi fyrst og svo þar fyrir neðan var dökk blá með fjólulit í bland þar sem sama var gert svo áfram að næstu sem var orans gul og svo rauð en síðast var skærhvít og síðan skein hvíta ljósið ofan frá á þær allar þannig að öll litadýrðin blandaðist saman og þá allt í einu kom eins og rafeinda ský hvirfilstormur umlukti mig allan og mikill þrýstingur kom á höfuðið og ennið án þess að það væri vont.

Síðan var ég staddur á gresju þaðan sem ég fékk mér göngutúr eftir leiðsögn Cris þar sem trégöngustigur hafði verið lagður sem ég fylgdi eftir að tré þar sem ræturnar vöfuðst um fætur mínar og svo var haldið áfram að litlu húsi og þar inn til hvíldar um stund.

Síðan var farið út um bakdyr áfram eftir göngustígnum fram hjá litilli kirkju þar sem numið var staðar fyrir utan og þakkir sendar inn og síðan áfram að fjallaskarði sem klífa þurfti yfir og fara niður hinumegin og áfram göngustíg sem kom í ljós og að lokum var numið staðar við háan múrvegg líkum grátmúrnum í ‚israel þar sem beðist var fyrir og síðan lagt af stað til baka sömu leið.

Þegar ég kom til baka og leir á úrið hafði ferðin tekið 1.15 klst án þess að hafa minnstu hugmynd um það og leið svo vel og sæll og glaður í hjarta.

Þá kom að vinnu á dýpri sviðum en til þess var settur upp skápur til að halda utan um orkuna og sjá hvað hver og einn kæmi með sumir töluðu aðrir breyttust og þegar röðin kom að mér var ég pollrólegur og fór leiðina sem mér var kennd fann stjórnandann og spáði ekkert frekar í eitt eða neitt.

Eftir á fékk ég að vita að umbreyting hefði átt sér stað á andliti og höndum þar sem orkan hefði verið soguð frá hinum nemunum og ég safnað henni saman milli handanna blandað litum saman við og síðan sent til baka heilun á alla í einu sem var víst ægisterk að sögn hinna.

Katryn sem sat á sviðinu fékk lagfæringu á mjöðm og baki og verkir teknir og eitt og annað lagfært hjá hinum og merkilegt að vita ekki af þessu svo ekki sé minnst á slíkan fjölda í einu en Katryn gerði þetta þegar við láum á gólfinu og hún þurfti rúman klukkutíma til undirbúnings.

Margt annað skeði sem við ræðum síðar en það er alveg ljóst að vinnuaðferðir breytast hjá mér eftir þetta og fara í nýjar víddir öðrum til hagsbóta enda miklu sterkari tengingar en áður.

Mér til ánægju buðu Cris og Katryn mér að koma aftur  á síðasta námskeið sem nefndin heldur að ári í nóv.2010 og þáði ég það strax. Þau eru að fara á eftirlaun en enginn nægilega sterkir hafa fundist að mati nefndarinnar til að taka við af þeim og því verður þetta það síðasta.

Ég skaut nú að Cris að mínar upplýsingar segðu annað en þær væru að þau myndu saman 2011 verða með framhaldsnámskeið prívat fyrir þá sem hafa verið hjá þeim líklega í Cober Hill og brosti hann bara en játaði hvorki né neitaði he he.

                                       Djúptrans og umbreytingafundur

Cris var með fund sl.Fimmtudagskvöld en ég hef verið viðstaddur ýmsa miðilsfundi bæði í vökumiðlun og transi  en þessi sló öllu við þar sem Cris breyttist í útliti og ekki nóg með það heldur breyttist röddin þegar þessir 3 karlmenn komu í gegn og kvenrödd í restina þegar hann breyttist í unglingsstúlku en umbreytingin mun hafa átt sér stað utan við líkamann eins og við sjáum hann en hann lætur stjórnanda sínum eftir 95% af heilastarfsemi sinni var okkur sagt eftir fundinn.
Sá fyrsti sem kom bauð upp á spurningar sem enginn var með á hraðbergi enda stóð hann upp úr skápnum og koma af sviðinu niður í salinn til okkar.
Hann bauð upp á sýnikennslu í hvernig væri hægt að nota orkuna sem þeir fá frá okkur til góðra verka en nú ætlaði hann að framkalla lykt þar sem einhver hafi nefnt megna rommfýlu þá rétt áður í kennslustund og kannaðist ég við það án þess að láta það uppi.
Hann strauk yfir handarbak hjá einum nema og lét hann lykta og segja okkur hvað hann fyndi og að svo mæltu snerti hann lófa og setti þar aðra lykt.
Þetta gerði hann við 5 nema fyrir framan mig hver með sýna lykt og þá með einhverjum ósköpum spurði ég hann beint hvort að þessi lykt væri þvottekta??.
Það varð smá hljóð og svo þrumaði hann hvort ég væri stóri maðurinn sem fann rommlyktina og varð ég að kannast við það og mælti hann svo fyrir að ég skyldi standa upp og snara mér fram fyrir hópinn til viðtals við hann.
Maður verður nú ekkert sporléttur þegar maður telur sig vera dottinn ofan í forarpitt bjargarlaus en hann setti þá fingurnar beint á rótarstöðina mína og var það eins og straumlausum síma væri stungið í hleðslu.
Ég gat þó lýst fyrir hinum hvað væri að ske en það voru frekari fínstillingar á kerfum mínum og tveim nýjum sem opnaðar voru og tuldraði hann þá að ekki væri furða að ég finndi lykt af þeim hinum megin .
Allt mun þetta hafa verið ákveðið fyrirfram og sló hann á létta strengi að þessu loknu og sagði mér að nýta þetta til góðra verka eins og alltaf og mátti sjá smá bros.
Arthur Finley stofnandi skólans kom einnig í gegn og svaraði spurningum en hann var mjög ósáttur við hvernig sumir miðlar misnotuðu nafnið miðill án þess að hann skýrði það nánar enda ekki spurður.
Konan sem kom síðust var ung þegar hún fór yfir og ég varð svo hissa að heyra svona mjúka kvenrödd frá Cris að ég gleymdi öllu því sem ég ætlaði að spyrja um svo dolfallin var ég.
Fundurinn stóð yfir í rúmar 2 klst.

                                                           
30 nóvember
Það eru rétt ókomnar 2 myndir sem Cris tók af hverjum og einum nemanda fyrir og eftir tengingar með sérstakri tölvu og forriti sem nýta á síðar til lækninga virki það eins og tæknimenn lækningatækjaframleiðandans vonast til en hann er að prufukeyra frumgerðina við kennsluna.
Ekki fékkst uppgefið hvaða framleiðandi þetta er.
Myndirnar sýna greinilega orkubrautirnar um líkamann þegar sérstökum filterum er rennt yfir myndina í forritinu sem virkar svipað og sónar ef ég skildi þetta rétt alveg stórmerkilegt.
Myndirnar eru í möppu efst til hægri á síðunni merkt SNU

                                               Viðbót  24 mai 2010
Það er rétt að geta þess að þessi viðbótartenging sem sett var á þarna á námskeiðinu sannaði sig að vera varanleg þegar ég fór í Siglufjarðarkirkju og kirkjugestir sem mættu fundu að gólfhiti í hnéhæð varð ískalt en því leið vel á eftir.
Svo virðist að ekki skipti máli hve margir mæta það er bara bætt í hjálparliðið en 40 manns voru í kirkjunni og fengu lagfæringu meina sinna og ljós í hjarta.
                                                            


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.10.2009 13:58:03 / heilun

Einföld leið til miðlunar

Miðlun er í eðli sínu ofureinföld en okkur hættir við að gera hana afar flókið fyrirbæri

Miðlun er í eðli sínu náttúruleg og afar einföld þeim sem hafa þennann hæfileika.

 A.Spurningar sem oft vakna eru:-Hvernig veit ég  það sem kemur sé ekki  ímyndun mín?

 Þegar þú móttekur boð frá þeim sem þú vinnur með í ríki andanna þá finnur þú strax hvaða upplýsingar sem þú færð sé þin ímyndun eða réttar upplýsingar að handan.

  1.Undirbúningur ekki bara rétt áður en þú ætlar að tengjast sambandinu heldur alla daga lífs þíns í þeirri tilraun að vera betri farvegur ljóssins og skilaboðanna sem þeir sem vinna með þér senda í gegn. 

2.Myndaðu holrúm í kring um þig bara fyrir þig. Hvernig getur þú byrjað þróun þína án þess fyrst að búa þér til holrúm þar sem þú getur lært með þér að setja kyrrð á hugann,einbeita þér fara í hugleiðslu og biðjast fyrir.

  3.Lærðu að skilja og meðtaka farveginn sem stjórnandi þinn að handan myndar fyrir þig í samvinnu við þig.  Spurðu þig að því, fékk ég einhverjar upplýsingar núna? Horfðu á og lærðu að meðhöndla þá gjöf sem þú fékkst í vöggu og þá opnun sem á sér stað þegar tíminn er réttur.  Þeir sem vinna með okkur veita þessa aðstoð en þeir geta ekki gefið okkur neitt til að flýta framþróun gjafarinnar því að allt hefur sinn tíma.

 4.Ekki reyna að umsnúa,rangtúlka þær upplýsingar sem þú færð eða stílfæra heldur láttu þig fara inn í flæðið og komdu með það sem þú færð óritskoðað af þér.Ekki gripa inn í upplýsingarnar með spurningum.Vertu meðvitaður um styrkleika þinn og veikleika að öðrum kosti getur þú myndað blokkeringu á samskiptin ómeðvitað.

Einbeittu þér þess í stað á allt jákvætt sem þú hefur gert.

 
 5.Verið jákvæð-miðlun styrkist við jákvæða hugsun.

 7.Ekki vera hrædd við að sá sem fær upplýsingar frá ykkur segi NEI í staðinn meðtakið upplifunina minnug þess að stundum er besta sönnunin er þegar meðtakandinn þarf að leita sjálfur upplýsinga um það sem hann hefur fengið en man þau ekki sjálfur í augnablikinu.

 Þetta getur haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif á miðilinn vegna þess að hann finnur að hann er ekki að lesa hugsanir meðtakandans heldur það sem kemur beint til hans að handan.

 8.Verið óhrædd að feta ókunnar slóðir því að annars munu þið aldrei upplifa hina duldu hæfileika ykkar.

 9.Munið að æfing skapar meistarann haldið áfram að spyrja stjórnanda ykkar um meiri og nákvæmari upplýsingar en veiða ekki meðtakandann.

10.Hafið trú á sjálfum ykkur. Ef þú hefur ekki trú á sjálfum þér og því sem þú ert að gera getur þú þá ætlast til að aðrir geri það??.

 Í öllum tilvikum vinnið með ábyrgð-heiðarleika-tillitssemi og mest áríðandi ástúð,því að þú er sendiherra þeirra sem þú vinnur fyrir í hinu æðsta.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2009 10:17:36 / heilun

Heimsfarsótt af inflúensu

Uppfært 16 mars 2010
25.04.2009 16:56:13 / heilun

Heimsfarsótt af inflúensu

Á jóladag 2008 hér að neðan setti ég inn sýn um að í apríl 2009 myndi gjósa upp farsótt og hefur það nú gerst í svínum í Mexico og er gefið upp að þegar hafi um 1000 manns smitast og talsvert mannfall.
Ég er búin að skoða þetta afbrigði influensunnar og sýnist að 3 mismunandi dna afbrigði sé að ræða sem þýðir að fiðurfé mun blandast saman við þennan ófögnuð og úr verði firnasterkt afbrigði flensunar þegar líður fram á árið en hún mun breiðast hratt út um Mexico og síðan um öll fylki Bandaríkjanna en fyrsta Evrópulandið verður Bretland.
Það er betra að hafa allan vara á þessum ófögnuðu þar sem hún er mannskæð og margir munu falla sem ekki eru með 100% líkamlega heilsu.
Ég sé þetta í sýn eins og svartan engilsprettumökk breiðast út frá Mexico til nágrannaríkis og með fólki til Evrópu í fyrstu en ég sé ekki Íslandi inn á þessu eða fyrrihluta næsta árs en við verðum bara að sjá til en þetta verður illvigt viðureignar vegna óvenjulegra samsetningar á dna erfðamengi hennar.
                                                               Viðbót
Sá bregða fyrir mekki af moskitóflugum á dauðu svínshræi og er það hugsanlega 3 hlekkurinn á dna keðjunni en flugurnar beri sóttina í mannfólk og fiðurfé en þessar pestarflugur virðast ónæmar fyrir svona sýklum muni því berast ógnarhratt út á meðan þær finna nýtt fórnardýr til að sjúga blóð úr og sýkja um leið af veirunni úr svínunum.  Menn tala enn um öndunarfærasjúkdóm en hafa ekki enn komið auga á aðra smitleið með moskitóflugum en þar liggur hættan að mér finnst samblöndun í nýtt afbrigði firnasterkt.
                                                     20 november 2009
Veiran hefur nú þegar stökkbreytt sér og fyrstu tilfelli nýja afbrigðisins kom upp í Svíþjóð en hún fer neðar í lungun og veldur þar miklum bólgum og andnauð.1 er látinn en 1 tókst að bjarga fyrir horn en hún skellur á með slíkum hraða að á rúmum 4 klst getur viðkomandi lent í öndunarerfiðleikum.
Læknar telja sig geta hamið þetta með lyfjum fyrir fyrri tegundina en ég sé þetta ekki þannig að þarf að útbúa strax bóluefni gegn nýja afbrigðinu.
Þegar ég skoða lungnavefi eftir slíka sýkingu er eins og smá blöðrur myndist í berkjum og taugavefum sem á endanum hindra súrefnisupptöku lungnanna en það sem mér sýnist verst eru örvefir sem eftir verða nái viðkomandi að vera hérna megin og getur þess vegna leitt til örkumlunnar viðkomandi til frambúðar því miður en vonandi gengur þetta ekki eftir.
                                                           21 nóvember
Stökkbreytta svínaveiran hefur nú greinst í Noregi sem segir eitthvað og landlæknir þar mælir með að taka Tamiflu með bólusetningu en hvers vegna dugar hún ekki lengur ein og sér?

                                                           30 Desember 2009
Hættan er ekki liðin hjá og mun hún aftur gjósa upp á nýju ári

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.10.2009 09:44:24 / heilun

Tákn ljóss og friðar

Sagt er að það sem þér viljið að aðrir gjöri yður það skulu þér og þeim gjöra.
Kæru lesendur.
Við skulum á næstu vikum og mánuðum hafa þetta hugfast þegar við þjöppum okkur saman um boð í örkinni hans Nóa á leið inn í brimskaflinn og við skulum gefa sérstakan gaum að  barnafólki og eldri borgurum en þau eru sum hver skelkuð við hið óþekkta eins og börnin.
Ljós og friður mun skína í hjörtu ykkar og gefa ykkur öllum þann lífskraft sem þið þurfið til að gera hið yfirnáttúrulega að komast yfir þessar hamfarir af mannavöldum.
Við skulum gefa okkur allan þann tima sem þarf að tala við hvort annað á hreinskilin hátt ekki fela óttan og koma fram sem hin sterka persóna sem aldrei má sjást bogna leyfir barninu í brjóstum ykkar að koma fram og losið með því hjartverkt óttans úr brjóstum ykkar.
Að fella tár er hluti mannlegs eðlis og í raun erum við öll að fara í gegn um sorgarferil sem skall á okkur öllum og því ígildi áfallastreytu sem erfitt getur verið að vinna úr.
Viðurkennið veikleika ykkar og þiggið þá hjálp sem í boði er en lokið ykkur ekki af því þið megið vita að þið eruð ekki ein.
Blessi ykkur öll í nafni ljóss og friðar.




» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2009 16:33:57 / heilun

Völvuspá

                                                 

Ég hafði áður spáð gríðarlegu efnahagsvandræðum víða í Evrópu og vaxandi atvinnuleysi en það mun versna til muna í haust og næsta vetur og í raun mun harðar þar en hér þótt ástandið hjá okkur verði þungt.

Við erum hér að tala um milljónir manna ekki hundruði í þessu tilliti og litlar greiðslur sem koma til almennings og verður neyðin mikil víða.

Enn vil ég minnast á jarðskjálfta sem ég hef áður talað um og skekur Asiu en þeir eiga eftir að fá enn harðari skjálfta og hættulega og við hér heima munum einnig finna fyrir þeim og eldgosi.


Hagvöxtur í heiminum verður mun hægari en bjartsýnismenn spáðu og er helst um að kenna gífurlegum fjárlagahalla í USA en þar eru peningaprentvélar og skuldabréfaútgáfa í fimmta gír álíka og var hér á kreppuárunum upp úr 1980 en þetta dregur niður önnur hagkerfi og ekki bætir úr skák spákaupmennska.
Ríkisstjórnin er enn völt á fótunum og mjög tvísýnt að nokkur eining verði þar um borð en fleiri mál koma upp en Icesafe sem reynir á samstarfið þar sem árin 2010-2012 og 2013 verða ár þar sem við þurfum að sleppa hlutum sem áður voru sjálfsagðir og neita okkur um annað ásamt gífurlegum niðurskurði á öllum sviðum íslensk þjóðlífs án þess að ég fari nánar út í það. 


Þó verða eins og ég sé það skorin niður um 6000 störf í opinbera geiranum í byrjun og miðbik næsta árs.

Spámenn á Wall Street þessir með þykku gleraugun sá einhverja smá ljóstýru handan við hornið og allt er sett á fulla ferð keypt og selt en þetta verður skammgóður vermir svo og þessi ljóstýra um efnahagsbata í 2 löndum ESB því atvinnuleysi á eftir að aukast gífurlega á svæðinu og við erum að tala um milljónir.

Seðlabankinn okkar birti sína spá í morgun 13 ágúst en við ykkur lesendur góðir þá ráðlegg ég ykkur að eyða ekki einni einustu krónu umfram brýnar nauðsynjar því móðurharðindin eru eftir og fjölmörg lagafrumvörp sem enn herða á okkur sultarólarnar.

Spá bankans er að hluta til byggð á sandi með svo mörgum ágöllum m.v það sem ég sé í kortunum að rétt er að hafa allan fyrirvara á henni

 
                                                      
  Uppfærsla 15 ágúst
Spurt er um ástand innanlands er svarið hér að ofan að eyða engu í óþarfa því móðurharðindin eru eftir eins og marg oft hefur komið fram í spám mínum og þótt Alþingi hafi gengið frá sínu máli í nefnd þá á enn eftir að koma með nýjar reglur sem herða svo á mittisbeltum okkar árin 2010-2013 að verkjar undan en óumflúið fylleríið er búið og timburmennirnir eftir þótt við hin nytum ekki veiganna heldur aðeins nokkrir útvaldir.

Mér sýnist í kortunum um lekann á lánabókum eins bankans að þær upplýsingar sem þar eru og enginn átti að vita um muni í haust valda miklum usla fyrir þekkta aðila og einhverjum þeirra stungið í fangaklefa ytra og enn fleiri fara í naflaskoðun yfirvalda aðallega hjá skattinum þannig að refsingar þar verða mun harðari ytra en hér heima og allar lánalínur til þeirra lokast og lok gleðidaganna blasir við þeim.

                                         Föstudagur 21 ágúst.

Framsóknarmaddaman leikur lausum hala í sölum Alþingis til að vekja á sér athygli og Icesafe málinu með öfugum formerkjum eins og staðan er í dag en mér sýnist að flestir sjái í gegn um þann spunaleik og málið fái eðlilega umfjöllun en mér sýnist að við munum fá óvæntan stuðning eða mótvægi gegn Bretum og Hollendingum úr óvæntri átt til þess að við getum greitt þessa umdeildu skuld uppistandandi en ekki liggjandi á fjórum fótum og kemur þar margt til sýnist mér litið fram til 2020.

Ég hef áður sagt að 2010-2013 verða okkur mögur ár en sé haldið rétt á spilunum má finna matarholur til að létta okkur róðurinn en fer ekki nánar út í það nú.
Olíulindir bæði á landgrunninum og á harðalandinu gnægð drykkjarvatns sem verður verðmætara en öll olían ótakmörkuð framleiðslugeta á lífrænum ómenguðum búvörum sem sífelt meiri eftirpspurn verður eftir nýjar siglingaleiðir um íshelluna inn í landhelgi Íslands og sýnist mér menn verða í startholum um 2016 að finna pláss fyrir umskipunarhafnir norðan og sunnan við landið til frekari dreyfingar um Evrópu og mikill uppgangur þar.

                                                         Laugardagur 22 ágúst
Mér sýnist að í haust muni stórbanki með gríðarlegt umfang fara á hliðina með gífurlegu samverkandi tjóni í einu Evrópulandanna en bankinn er mjög stór og með útibú í mörgum löndum
.
                                                          Ísland 2010
Já það mun nú ekki blása byrlega fyrir okkur á næsta ári miðað við þann luxus sem við erum vön að hafa.Atvinnuleysi mun aukast í byrjun vetrar og ná hámarki í mars 2010.
Ríkissjóður þarf að skera verulega niður kostnað og munum við sjá mun hærri þjónustugjöld hjá hinu opinbera hækkun skatta og niðurlagningu stofnanna með sameiningu þeirra og fækka fólki.

Landsbyggðin er þar ekki undanskilin og má segja að þjóðlíf 2010 verði með sniði sem enginn bað um svo mikið er víst og enn mun biturð ágerast og blóraböggla leitað í innviðum samfélags okkar og jafnvel innan þings vegna þeirra hörðu ákvarðanna sem taka þarf til að ná markmiðum erlendra eftirlitsstofnanna einskonar stóra bróðurs.

Við munum ekki komast yfir þröskuldinn með bölvi og rangli heldur verðum við að standa saman sem ein þjóð og ekkert gefa eftir hvað það varðar.
Við þurfum að gæta vel að minni máttum þar sem skorið verður harkalega niður í þjónustu til þeirra eins og annarra því miður sýnist mér.

                                                               26 ágúst
Seðlabankatölur í USA sýna nú 16% atvinnuleysi sem er það mesta frá stríðslokum eða 16.5 milljónir manna og ekki er botninum ná þar þótt hlutabréfahéðnar spái í golfkúlur og kaupi og selji sem aldrei fyrr einskonar spilafíklar sem rugla öll hagkerfi í raunstöðu eins og ég hef áður sagt.   Við erum ekki ein á báti með bágan fjárhag og ekkert ríki er með jafnfullkomið atvinnuleysistryggingakerfi og við hér á fróni.

                                                             27 ágúst
Peningastefnunefnd birti í dag fundargerð sína í dag og staðfestir hún allt ofangreint og ef eitthvað er þá er nefndin svartsýnni en ég og spáir fimbulfrosti í atvinnumálum allt til 2012 með skertum kaupmætti og því rétt að halda að sér höndum með alla eyðslu og ekki stofna til skulda í öllum bænum.
Atvinnuleysi í Evrópu er enn á uppleið á skelfilegum hraða og í flest lönd í kring um okkur eiga við mikla erfiðleika að stríða og mun fara harðnandi á komandi vetri.
                                                              Icesafe
Mér sýnist í kortunum að þing Bretlands og Hollands muni ekki ganga að þessum skilmálum Alþingis þar sem ábyrgðin sé komin til þeirra af okkur og því verði það ekki samþykkt. Ekki er gott að sjá hvort að þeir bjóði upp á nýjan samning eða gjaldfelli þann upprunalega og þá er spurning hvar við stöndum en það þarf ég að skoða aðeins betur.
                                                             
31 ágúst
Mjög athyglisverð frétt í MBL í dag um slæma fjárhagsstöðu USA m.v spá mína.
Þar segir að útgjöld og fjárlagahalli USA muni aukast mjög á næstu árum og áratugum og aðeins taldar 3 leiðir út úr þeim vanda?? 1.Jafna reksturinn með miklum skattahækkunum? 2.Prenta peningaseðla fyrir skuldunum sem eykur hættu á óðaverðbólgu þar í landi? 3.Hætta að greiða af skuldum ríkisins og telur leiðarahöfundur  Library of Economics and Library að þessi leið verði farin í framtíðinni??

Fjárlagaskrifstofa Bandaríska þingsins telur að á næstu 75 árum muni útgjöld bandarísku þjóðarinnar fara í allt að 35% af vergri þjóðarframleiðslu en þar inni eru ekki vaxtargreiðslur en með þeim 44%
Sú sýn mín að annað stærsta hagkerfi heims sé á brauðfótum er ekki ýkja langt frá þessum upplýsingum þingsins og hlýtur að vera grafalvarlegt mál fyrir heiminn allann og gæti sett önnur hagkerfi í uppnám fljótlega eins og ég hef áður minnst á.

Ég hef áður sagt það að Californina stærsta hagkerfi innan USA er gjaldþrota og þarf að greiða hluta reikninga með skuldabréfum en þeim hefur ekki og mun ekki takast að koma saman fjárlögum á þingi þess.

Kinverjar eru stærstu eigendur bæði af ríkisskuldabréfum USA og reiðufé á US$ og svona fréttir munu örugglega ekki auka bjartsýni á ástandið.

                                                       
                                Horfur erlendis næstu vikur 3 september
Vísitölur munu taka skarpa dýfu erlendis  næstu vikur og fjárfestar brenna sig illa í gómana sérstaklega í USA og Bretlandi en þar verður tapið stórt en þetta máttu þeir vita að botninn væri fúafen.

Atvinnuleysistölur munu taka stökk upp á við í byrjun Nóvember og sýnist mér að íslensku lífeyrissjóðirnir ættu að losa sig við erlendar fjárfestingar á meðan eitthvað fæst fyrir þær en þær munu falla eins og önnur bréfaverðmæti á mörkuðum.

Ef eitthvað er sýnist mér til lengri tíma litið og beltin spennt að þá munum við hér á fróni koma betur út úr myrkrinu en margar aðrar þjóðir ef eitthvað er
.

                                                        
Erlent 4 september

Mér sýnist að á næstu 24 mánuðum munu verða sterkar efnahagsbreytingar í Swiss í þá veru að ríkustu menn veraldar munu flýja með fé þangað vegna aukinnar skattheimtu í skattaskjólum svo sem Bahamaeyjum og ná þannig aftur sýnum fyrri styrk sem stærsta skattaskjól veraldar og ekki útilokað að einhverjir Íslendingar einir 6 eigi þar geymsluhólf.
                                                   
                                                       10 september
Mikil reiði og upplausn á eftir að brjótast út fyrripart vetrar hér á landi sýnist mér vegna fjármálagjörninga sem kunngerðir verða og sýnist mér stjórnin riða til falls.

                                                        
Heimurinn 2010-2013
Bretland mun sigla inn í mikla hnignun frá stíðslokum með met atvinnuleysi og sýnist mér að skattheimtan þeirra hafi verið ofreiknuð í fjárlögum um tugi milljarða  punda sem gerir vanda þeirra enn verri.
Miklar sveiflur verða á mörkuðum og sýnist mér spákaupmenn hlaupa á milli kerfa svo sem peninga harðmálma og olíu til að hafa eitthvað fyrir stafni en hagkerfi heimsins munu rekast illa á vegna hnignum á verðgildi dollars og viðskiptahindranna sem Obama hefur sett um gegn Kina en mun koma í bakið á þeim.
Algjört helfrost sýnist mér verða í lifnaðarháttum íbúa fyrrum Austur Evrópu á komandi vetri og líklega sá harðasti frá stríðslokum og fátt il bjargar. Hagvöxtur mun ekki taka við sér að neinu marki fyrr en í árslok 2012 og á meðan mun ríkja óvissa og miklar sveiflur sumar æði öfgakenndar finnst mér.
Spánn Ítalía Grikkland eiga í miklum erfiðleikum og þar mun atvinnuleysi enn aukast og bankastofnanir falla.
Mér finnst að þessi ríki eigi eins og Bretland í miklum erfiðleikum með fjárlög þar sem dregið hefur svo ört á innstreymi skatta vegna atvinnuleysis og gjaldþrota sem gerir þetta enn erfiðara fyrir þessi lönd.
Danmörk og Svíþjóð eru bæði á hálum ís vegna bankamála og skuldavafninga sem tengjast Austur Evrópu og húsnæðismarkaði og ekki útséð hvar þau ósköp enda.
                                                        25 september
Þjóðarleiðtogar hamast nú við að samþykkja eitt og annað til úrbóta en hafa nú orðið að hlusta á sérfræðinga sem eins og ég spáði gert sér ljóst að jökulhetturnar og þar með á Grænlandi bráðna hraðar en reiknað var með og veldur hækkur á yfirborði sjávar vegna slæmrar umgengni við móður náttúru, Holland og eyjar á Eyjahafi munu finna fyrir þessu og mörg fleiri lönd þar sem liggja lágt við sjó.
Mér sýnist yfirvofandi hryðjuverkarógn vofa yfir Evrópu jafnt sem USA þar sem ekki verður beitt hefðbundnum vopnum og þessar ógnir munu áfram verða til staðar og þá á meðal milli trúarbragðahópa sem aðhillast Islam.
það er ekki vinnandi vegur fyrir nokkurt ríki að koma þar að málum þar sem trú þeirra er er afvegaleidd og ægisterk.
Stjórnarskipti verða í Bretlandi og Japan sýnist mér í byrjun næsta árs vegna óstjórnar og sundurlindis fjárlaga.
                                                         29 september
Það hefur ekki farið framhjá neinum þær miklu náttúruhamfarir sem geysað hafa á manila og nú að bresta á í Cambódíu en þessir hvirfilbylir sýnist mér eiga eftir að styrkjast á næstu þremur árum og ná allt að 300km hraða vegna loftlagsbreytinga samfara hlýnun jarðarinnar.
Þetta er skelfilegt í ljósi þess að slíkur vindhraði er lífshættulegur öllum sem verða á vegi þeirra og byggingar munu hrynja sýnist mér og þá er ég að tala um stórar og sterkar byggingar.
Mjög hættulegt og eldfimt ásand er nú á landsvæðum við Íran og nánast ómögulegt að spá hvað þar muni ske en mér sýnist að gerð verði tilraun til að sprengja í loft upp eldflaugaskotpalla þeirra og hugsanlega kjarnorkuframleiðslubyrgi.
                                                           29 september
Því miður varð jarðskjálfti á hafsbotni við Samoa eyjar nú í kvöld upp á 8.3 á ricter og fleiri svona harðir verða á næstunni í þessum heimshluta.
                                                            30 september
Geysi harður skjálfti upp á 7.9 skall á Sumötru fyrir stundu en allt er á huldu enn með afleiðingar hans en því miður er þetta ekki búð bara byrjunin á því sem koma skal.
                                                               1 október
Því miður munu tugir þúsunda manna hafa farist í þessum náttúruhamförum á undanförnum sólarhringum og mun það koma í ljós á næstu vikur þegar rústir heilla þorpa verða grafin upp.  Þá munu menn einnig sjá að yfirborð sjávar er óvenju hátt .
Manilla er enn í mikilli hættu vegna yfirvofandi flóða og sýnist mér höfuðborgin vera eins og rústir einar og farsóttir munu koma upp.  Þá eru nærliggjandi eyjar eins og Sebu einnig í hættu.Mér sýnist eins og þessar hamfarir séu ekki enn yfirstaðnar hvað jarðskjálfta varðar á þessu svæði og gæti hann komið upp á öðrum stað en það er eins og hafsbotninn gangi í bylgjum og mikil spenna á flekamótunum.
                                                              Evrópa
Það mun ekki blása byrlega í vetur um alla Evrópu og sýnist mér að sum ríki séu í sama skuldafeninu og við en ´það á eftir að koma þar bankakreppa þar sem sumar fjárfestingar og afskriftir hafa ekki litið dagsins ljós sýnist mér.Heldur meira atvinnuleysi verður en ég sá fyrir áður og eru það nokkrar milljónir til viðbótar og hrein hörmung.
                                                                 USA
Obama mun lenda í hörku deilum við þingið en þau áform hans um blóm í haga fyrir þjóðina eru víðs fjarri og mörg hættumerki sem ég sé á lofti og hafa áhrif á markaði heimsins.
                                                                3 október
Enn dynja jarðskjálftar yfir hamfarasvæðin í Eyjahafi og 1 nú í morgun en þetta er svakalegt að sjá hafsbotninn ganga svona í bylgjum.
Ég sá einnig ofboðslegt magn af hvítum liljublómum á haffletinum sem segir mér að þegar hafaldan gekk á land allt að 6 metra há hafi gífulega margir farið með á útsoginu menn konur og börn og langur tími mun líða þangað til manntal hefur farið fram og himinháar tölur látinna birtast.
Það sama á við í rústum heillrar borgar en þetta er bara ólýsanlegur harmleikur þegar rauntala látinna verður ljós.
Mér sýnist að þessum hamförum sé ekki lokið enn.
                                                              3 október
Icesafe er enn í klemmu og verður það næstu mánuði þótt reynt sé að ná einhverjum samningum um það mál en mér sýnis sem stálinn stinn mætast og VG muni ekki samþykkja Istanbul fundinn og útkomuna en er hún þess eðlis að taka þyrfti málið upp að nýju á Alþingi.
                                                             5 október
Jörðin skelfur enn bæði hér á landi og erlendis og mun færast aftur í aukana.
Mér sýnist að fjármálamenn erlendis tippli á tánum vegna svo margra óvissuþátta í hagkerfinu og sérstaklega USA að þeir ráfa bara um ráðvilltir.
Mér sýnist hér heima fyrir að umsókn um ESB verði afturkölluð með nýrri ríkisstjórn og sýnist mér það rétt val m.v.það sem við hefðum þurft að láta af hendi og ESB ásælist.
Það er nefnilega ekki allt sem sýnist við þessa inngöngu fyrir hagsæld landsins eins og við höfuð þekkt það í gegn um aldirnar sem fullvalda þjóð með mikið þjóðarstolt.
 Við munum ná okkur út úr þessari kreppu uppistandandi ef rétt er haldið á spilunum sem ég vil ekki fara nánar út í að sinni það sem ég sé inn í framtíðina fyrir land og þjóð.
                                                                 USA
Mér finnst eins og einhver stofnun hins opinbera í USA hafi gert alvarleg mistök í útreikningum á hagkerfi sínu þar sem önnur holskefla á gjaldþrotum vegna einka og atvinnuhúsnæðis sé í kortunum á næstu mánuðum sem þeir verði í miklum vandræðum með og atvinnuleysi þar á miðjum vetri verði nálagt 13%. Greiðslukortayrirtækin lenda einnig í vanda vegna mikilla vanskila þar og það mesta frá stríðslokum.
Dollar mun halda áfram að gefa eftir og þá er hætta á að olía hækki á heimsmarkaði og þetta er svolítið skrítið að sjá en mörg hlutabréf munu hríðfalla fyrir áramót af þessum sökum og brenna marga. Ríkisskuldabréf munu verða að þola hærri vexti með miklum fórnarkostnaði líkt og við göngum í gegn um nú.
                                                              13 október
Mér sýnist í kortunum að heldur muni hnattrænt síga á ógæfuhliðina fyrir flest ríki heims utan Kína vegna fjármálaóstöðugleika og hugsanlega muni Seðlabankar þurfa að breyta vöxtum sínum upp á við til að stilla af sem kæmi sér mjög illa fyrir okkur ef við ætluðum að hefja lækkunarferlið þá.
Atvinnuleysi um allan heim mun færast í aukana á komandi vetri og ná nýjum hæðum fyrir sum lönd álfunnar og IMF verður fyrir miklum álitshnekki vegna pólitískra afskipta hans án þess að ég sjái Ísland þar inni í umræðunni.
 Gjaldmiðlamál verða áfram þrætuepli vegna kaupa og greiðslu fyrir olíu en þetta hefur verið svona allt árið og næsta ár verður mjög sérstakt hvað þetta varðar og missi USA þetta úr höndum sér sýnist mér valdahlutföll heimsins verða all sérstæð vægast sagt.
                                                                  15 október
Múslimskir öfgamenn berast nú á banaspjótum geng þeim sjálfum daglega í Írak og Afganistan en hættan er meiri en það sýnist mér og mun færast í aukana og fara víða um heim á næsta ári og fáir óhultir fyrir þeirra stefnumótun að snúa öllum heiminum á sitt band innan 5 ára.
Þetta er löngu planlagt og vísað í spámanninn en þar er ekkert um slík voðaverk heldur þvert á móti samkennd og bræðralag.
Margar þjóðir heims munu verða fyrir manntjóni við slík fólskuverk á næstu árum og það mun valda miklum usla hjá saklausum múslinum margra ríkja sem munu sæta ofsóknum af þessum sökum. Ekki er útilokað að þeir muni þröngva Sharialögum þar sem þeir komast að og umbreyta heiminum eins og við þekkjum hann í dag.
Það er útilokað að setja sig inn í hugaheim manna sem teljast til guða ef þeir sprengi sjálfa sig og samlanda sína og deyða eða limlesta daglega.Þetta er slík gimmd og mannfyrirlikning að engu tali tekur.
                                                                  11 október
Birtar hafa verið alvarlegar tölur um að olíuauðirinn kunni að þorna mun fyrr upp en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir eða eftir 20 ár.  Þetta er mjög nærri því sem ég sá en það voru 30 ár en þetta veldur vandræðum á mörkuðum ofan á allt annað.
Ég hef skoðað stöðuna á Spáni Ítalíu og Írlandi næstu 3 árin og er sú sýn hrikaleg.Þeir eiga eftir að lenda í stórvandræðum með bankakerfi sitt sérstaklega Írar og svo Spánn og mun atvinnuleysi snaraukast frá því sem nú er en evran er þeim fjötur um fót í viðskiptalegu tilliti og ekkert hægt að gera.   Þeir verða einfaldlega að lækka útgjöld enn meira sýnist mér og hugsanlega lækka kostnað við hermál mjög mikið.
                                                                      Ísland
Mér sýnist ekkert sérstakt vera að gerast hjá okkur umfram það sem ég hef áður sagt aðallega spjallað en lítið gert og Icesafe á sínum stað.   Ég sé ekki í kortunum að Bretar og Hollendingar muni hvolfa landinu til þess munu þeir ekki fá stuðning ESB og þora því ekki upp á sitt einsdæmi en það sem verður gert mun koma í ljós um miðjan næsta mánuð án þess að ég fari nánar út í það nú.
                                                         Spálýsing 12 október
Nú í morgun ákvað Hollenska ríkisstjórnin að taka við stjórn DSB bankans en þar inni er nánast allt sparifé landsmanna tengt Rapo bankanum og með útibú víða í Evrópu og hefur því sýn mín hér að ofan verið rétt frá í ágúst að stórbanki muni falla.Þetta er því miður þótt um Hollendinga sé að ræða bara byrjunin sem síðan breiðist út því önnur efnahagsbóla án innistæðna er að springa. Holland ábyrgist allt að 100.ooo evrur á hvern innlánsreikning þannig að fari þetta illa hjá DSB og Rapobank verður fallið stórt enda tekur fólk út reiðufé í stórum stíl minnugir Icesafe.
Nú síðdegis var bankinn tæknilega gjaldþrota og skiptastjóri settur yfir hann.
Þá má geta þess að margir seðlabankar álfunnar utan ESB hafa verið að losa sig við US $ og kaupa Evrur í staðinn sem þrýstir dollar enn neðar og hækkar olíuverð.
                                                             12 október
Jörðin skelfur enn í Eyjaálfu og mun frekar færast í aukana og einnig finnst mér að einn stór komi til nálagt Kaliforníuflóa á næsta ári.
Hitinn eykst stöðugt í norðanverður Vatnajökli og sýnist mér að það muni jafnvel gjósa á tveim stöðum í einu en ekki eignatjón. Eitthvað mun þó jörðin skjálfa austanmegin við Kambana á svipuðum tíma.
                                                             14 október
Séð yfir heiminn er eins og að horfa á risastórt matador spil þar sem keypt er og selt en flugfélög víða um heim og í Evrópu munu leggja upp laupana sum sameinast önnur gefast upp vegna harðnandi kreppu fall bankastofnanna tapaðra eiga og sparifjár en Icesafe er eins og sykurmoli miðað við þessa sýn.
Dollar mun halda áfram að lækka og Evran hækka gagnvart honum vegna uppkaupa varasjóða stærstu banka og kaupahéðna heimsins.
Gull Silfur og aðrir harðmálmar olía og þar á meðal ál mun hækka áfram í verði og sýnist mér að korn og aðrar lífsnauðsynjar milljarða manna muni hækka svo vegna uppskerubrests víða um heim vegna loftlagsbreytinga að þetta fólk getur ekki ráðið við það.
Við gætum séð hugsanlega á næstu árum að stærstu iðnríki heims gætu hugsanlega farið að nota sína eigin gjaldmiðla í viðskiptum sín á milli og mun það enn höggva skarð í stöðu dollars og andlits USA gagnvart heiminum og þá er óvíst hvernig spilin stokkast.
Margir banka og fjármálamenn ytra verða ákærðir á næstu mánuðum og hljóta þunga dóma og hugsanlegt að 1 íslenskur verði þar á meðal.
Alþingi verður eins og skólastofa í 5 ára bekk í vetur þótt grátlegt sé vegna sundurlyndis og ósátta.
Forsetaembættið mun bíða mikinn álitshnekkis í byrjun vetrar og spurning hvort Ólafur sitji þar áfram?
                                                     15 október
Áhættufíklar á Wall street fara alveg hamförum í að búa til loftbólur sem engin innistæða er fyrir og sýnist mér bónusarnir ráða þar för sem verða með þeim hæstu í sögunni og breytir engu hvað ný skipaðar eftirlitssveitir Obama með fjármálafyrirtækjum segja. Það virðist vera að árið 2008 sé enn á þeirra almanaki og verður fallið stórt.
                                                          Hafið
Mér sýnist að hafsbotninn hafði lyfts lítillega á hamfarasvæðum í Eyjaálfu og hækkað sjávarstöðu á útflæði ýmisra landa um tugi centimetra en á næstu 20 árum getur hæð sjávar risið á milli 2-3 metrar og valdið miklum vandræðum bæði hér á landi og á öðrum stöðum í heiminum.Þá er eins og stórt flykki brotni af íshellu Suðurpólsins rétt eins og heil borg tugir ferkílómetra og fari hægt af stað.

                                                       19 október
Bandaríkjamenn eru nú að upplifa öðru sinni mestu glæpamenn í þeirra sögu vegna innherjaviðskipta og keyra upp verðin rétt eins og ég nefni hér að ofan loftbólur sem ekkert stendur undir.
Nokkrir hafa þegar verið handteknir og þegar líður á rannsóknina mun koma í ljós að allt fjármálakerfið að Wall Street meðtöldu er gegnsýrt af bröskurum óheiðarleika og græðgi vegna launabónusa og eigandi fjársins er aukaatriði.
Þetta mun skekja öll fjármálakerfi því Bretland á eftir að hefja sínaa rannsókn en gjaldþrota bankar ætla að greiða út hæstu ´launabónusa í sögu landsins þótt ríkið eigi 70% í þeim og engu um að kenna nema einkavinavæðingu sýnist mér.
Eins og ég sé þetta stendur öllum hagkerfum heims meiri ógn af Vogunarsjóðum en hryðjuverkum.
                                                  Ísland 20 október
Margt grátlegt er að gerast á okkar litla landi og verður því miður enn verra næstu 7-8 ár og alls ekki útilokað að þjóðin verði gjaldþrota.
Ráðamenn hér hafa lítið skoðað það sem er að gerast á mörkuðum um allan heim hækkandi olíuverð samfara lækkun dollars og gengi litlu krónunnar okkar fær hvert höggið á fætur öðru og hækka skuldir þjóðarbúsins upp úr öllu valdi en þetta eru ytri aðstæður sem ráðamenn tóku ekki með í reikninginn þegar samið var um skuldir.
Talan 6000 glötuð störf hjá hinu opinbera eru enn inni í myndinni þar sem fjárlagagatinu verður ekki lokað á 2 árum öðruvísi en að sameina og loka þjónustustofnunum sýnist mér.
Icesafe mun standa mjög tæpt í atkvæðagreiðslu og getur brugðið til beggja vona en mjög harðar deilur verða um viðbætur samningsins og gæti munað 2 atkvæðum.
Fjöldi þeirra sem flytja úr landi hátekjufólk vel menntað læknar hjúkrunarfræðingar verkfræðingar og fleiri tæknimenntað fólk mun fara og þeir fáu sem eftir verða þurfa að axla meiri byrgðar.
Ríkisstjórnarskipti eru enn inn í myndinni.
                                                                22 október
ASI hefur nú birt svarta efnahagsspá sína til loka árs 2012 og er hún í fullu samræmi við það ég hef skoðað og því ekkert annað en að hafa bæði axlabönd og belti á leið um þessa brimskafla því miður.
                                                                
                                
                                                                  24 október

Eins og að ofan greinir þá eru Bretar að sigla inn í mjög alvarleg fjárhagsvandræði í efnahag sínum og eru að nálgast sama stig og við þótt ótrúlegt sé og þurfa þeir að skera harkalega niður eigi ekki að ríkja þar helfrost.
Fleiri Evrópuríki sigla svo í kjölfarið og það sama á við USA eins og minnst er á að ofan en 100 bönkum hefur verið lokað og ekki gott útlit framundan hjá Obama með sína þjóðarskútu.
Kina þarf að standa fast á bremsunum til þess að þjóðarframleiðslan þeirra sprengi ekki efnahagskerfi þeirra en bigrðum er safnað upp sýnist mér á bak við tjöldin til þess að halda uppi vinnu en Japan á í miklum vandræðum en allt er um það er hér að ofan.                            
                                                       
Heimsfarsótt af Inflúensu
  
                                                        
                                                              4 september
Þessi pestargemlingur hefur sýnt á sér klærnar með því að leggjast þungt á öndunarfæri ungs heilbrigðs fólks og hreinlega leggja það inn á gjörgæsludeildir í´bráðri lífshættu og betra að hafa allan varann á þegar vetur gengur í garð því að mér finnst eins og þá komi nýja afbrigðið fram                                                              26 október
                                                                       Heimurinn
Stríðshrjáðar þjóðir Íraks og Afganistan munu áfram þróast á sömu braut vegna innbirðis deilna um trúarbrögð þeirra sjálfra algerlega óháð erlendri hersetu sem mun verða þar um ókomin ár sýnist mér vegna olíuhagsmuna.
Mannfórnirnar í gær sýna það hugarfar sem þessir hópar gera í nafni trúarinnar og þeir muni öðlast eilíft líf framkvæmi þeir slík voðaverk.
Ég fæ ekki séð næstu 10 ár að nein breyting til batnaðar verði meðal Múslima heldur þveröfugt um allan heim því miður og ekkert sem vestræn ríki geta gert því trúin er þeim allt þótt afvegaleidd sé.
Markaðir erlendis munu halda áfram að falla og hugmyndir þýska kansarans um lækknun skatta þrátt fyrir trilljónir evra fjárlagahalla muni koma harkalega í bakið á ríkisstjórninni um mitt næsta ár.
Mér sýnist stutt í stjórnarskipti hér heima þar sem kröfur eru svo miklar á ríkisstjórnina um stefnubreytingu að hún geti ekki kyngt því ofan á Icesafe.
                                                           Holland
Ég hef áður nefnt hækkandi sjávarborð um allt að 20cm og þegar þessi lestargöng undir Amsterdam voru grafin hafa menn illilega misreiknað eðlilegt vatnsrennsli í jarðveginum og það að borgin er undir sjávarmáli og sýnist mér afar sérstæð mynd blasa við á næstu 5 árum eins og formkaka sem sigur í miðjunni en hversu mikið er erfitt að segja en þó rúmur metri.
                                                            Kaupmannahöfn
Sagt er að borgin muni brenna við ráðstefnu um loftlagsmál sem öfgassinnar muni standa fyrir en þegar ég skoða þetta vera mun alvarlegra og múslimar muni blandast þarna á meðal fólks til að launa fyrir grínmyndir af spámanninum en vonandi gengur þetta ekki aftur þar sem ég sé mikið eignartjón og eittvert mannfall eða alvarleg meiðsli.
                                                               Island
Mér sýnist að bæði AGS og ríkisstjórnin séu komin með bjartsýnisgleraugu varðandi þá fullyrðingu að um mitt næsta ár verði mun bjartara hjá okkur. Því miður sé ég þetta ekki gerast svona vegna þess að svo margir óvissuþættir eru í farvatninu og fjárlög óafgreidd ásamt óeiningu á stjórnarheimilinu.
Fjármálaráðherra USA hefur einnig fengið þessi sömu gleraugu og AGS en þeir virðast ekki átta sig á stórri fjármálabólu án inneignar sem mun springa fljótlega ásamt fjölda fjármálamisferla áhættusjóða bæði þar og í Evrópu.
Við verðum enn að hafa bæði axlabönd og belti spennt hér á landi og halda sjó.
                                                             Jarðskjálftar
Já þeir byrjuðu fyrst suður af Reykjanesi og hafa fært sig austur fyrir Hellisheiðarvirkjun sem ég hef áhyggjur af sérstaklega svæðið sunnan við þjóðveginn við Kambana og þar til sjávar.
Einhverjar hræringar eru á Þeystareykjum og allt norður í Flatey og finnst mér að þetta muni ganga yfir í bylgjum en mikil spenna er undir landinu sunnan og norðanmegin ekki svo djúpt innan við 10km og færist upp en mun ofan í jöklinum innan við 2 km.
                                                         Hagkerfi heimsins
Spárnar hér að ofran hafa verið að koma fram og eru nú 115 bankar gjaldþrota í USA og ekki búið enn.Það sama er að ske víða í Evrópu og hér heima sé ég aðeins 1 banka uppistandandandi innan 24 mánaða vegna þess að eigið fé þeirra er svo lítið og þær afskriftir sem fara þarf í og endurreisn er svo vanmetin á umfangi og fer hljótt.
Innlán eru það sem bankarnir hafa í dag og rétt að huga vel að sínum fjármálum en íslenska ríkið hefur ekki bolmagn í annað innistæðuáfall og er ég þar að skoða aðkomu erlendra aðila sem mér sýnist að hafi engan áhuga á viðskiptum hér heldur aðeins að lámarka sitt tjón.
Ég hef aðeins litið fram í tímann með skuldavanda heimilana tímabundna greiðsluaðlögun og lýst ekki á blikuna þegar þau höft verða tekin af.
Enginn bankanna stæðist þá raun ef massa úttektir yrðu af innlánsreikningum og sett í bankahólf.
AGS lýsir miklum áhyggjum af neyðarlögunum sem sett voru og ef þau tapast í dómsmáli gæti það þýtt aukalega 620milljarða reikning á þjóðina.
Ég deili fyllilega þessum áhyggjum AGS en einhver mál eru í kerfinu hvað þetta varðar en læt ósagt um úrslit.
                                                             Ísland
Mér lýst ekki á hvað er í farvatninu miðað við ofangreint á skuldum þjóðarbúsins litið til framtíðar því að menn eru svo uppteknir af Icesafe að allt annað situr á hakanum svo sem greiðsluþol okkar sem mér sýnist bera skipbrot því að Neyðarlögin munu falla á öllum dómsstigum hér vegna brota á ákvæðum Stjórnarskráinnar ef ég les þetta rétt og annað geta dómararnir ekki gert. Hefðu menn farið aðeins hægar á sl.8 mánuðum og leitað álits færustu sérfræðinga  svo sem Réttarfarsnefndar sem varaði við þessum gjörningi hefði þetta blasað við en
menn taka hér áhættu og við tökum afleiðingunum.

                                               Hagkerfi heimsins 1 hluti
Indverjar eru slyngir í viðskiptum og sá gjörningur þeirra að kaupa gull í tonnavís og losa sig við US dollar er byrjun á því ferli sem ég hef greint frá hér ofar en er að gerast mun hraðar en ég sá fyrir og þetta er eins og ég sé það ekki ólíkt því að vogunarsjóður taki stöðu með falli krónunnar en að þessu sinni dollar og missi hann flugið sem gjaldmiðill í heimsviðskiptum mun hrikta verulega í öllu efnahagskerfum heimsins.
Þetta er mikið hættuspil og líklegt að önnur Asiuríki fylgi í kjölfarið og ríkisbréf USA fari á brunaútsölu.
Menn tefla djarft í Matador spilinu eins og ég nefni hér að ofan og þeir ríku verða sumir hverjir ríkari en þeir fátæku munu sjá fram á harðan vetur.
Ukraina og Rússar munu deila hart um gassölu og vanskil og sýnist mér tímabundin lokun verða á gasflutningi frá Rússum sem um leið lokar fyrir gasstreymi til Evrópu með mjög alvarlegum afleiðingum vegna svínaflennsunar.

                                                      Hagkerfi heimsins 2 hluti
Flestum sérfræðingum heimsins á sviði fjármála hafa örugglega farið á eintal sálarinnar til að sjá betur um þykk bjartsýnisgleraugun að niðdimm þoka er framundan um allan heim og ekki allt sem sýnist.
Einhverjum þingmönnum hér heima er orðið ljóst að spá mín hér að ofan að fyrst í árslok 2012 fari að létta til hjá okkur sé nærri lagi og spár AGS út í bláinn og er það vel.
Ég set það bara inn eins og ég sé það að veturinn hjá okkur í fjármálum heimilanna verður líkt og á Norðurpólnum því miður og færi betur að leiðtogi ríkisstjórnarinnar segði þjóðinni satt og rétt frá staðreyndum og hvað sé í raun í kortunum utan hrapandi kaupmáttar á næsta ári í stað þess að segja að þetta bara lagist allt saman sem er kolrangt því miður en mér sýnist stittast í brottför hennar úr ríkisstjórn.
Ég hef sett inn hér að ofan að ég efist um heilbrigði bankakerfis okkar og að aðeins 1 banki verði hér starfandi auk sparisjóða en þó ekki allra og hefur Seðlabankinn í raun staðfest þessar spár mínar sem eru dekkri en ég sá fyrir og munar þar umtalsverðu en áfall samt og þá reynir á kröfuhafa bankakerfissins og hvað þeir munu gera.
Fjármálaráðherra USA hefur nú viðurkennt að batinn sé ekki á leiðinni og botninum sé ekki náð þar enn og það sama á við um flest Evrópulönd en þar berja menn hausnum við staurinn og horfa ekki á staðreyndir þar sem verðmæti stólanna er ofar hagsmunum almennings.
                                                            Ísland
Ég vil hvetja fólk til þess að lesa vel spárnar hér að ofan hvað okkur varðar og þær hugmyndir sem ríkisstjórnin íhugar til tekjuöflunar en mér sýnist að nánast verði uppþot og málþóf á Alþingi fljótlega þar sem flestar tillögur sem ég hef skoðað fram í tímann munu gera heimilum enn erfiðara fyrir að hafa ofan í sig og á ásamt því að standa í skilum.
Mér sýnist að dimmt verði yfir jólunum 2009 á þúsundum heimila og sumstaðar heyrist mér grátið.
Bið fólk að huga vel að sér með greiðsluaðlögun eins og ég nefni hér að ofan því það sýnist mér varhugavert þar sem vísitalan mun taka stökk upp á við og gengið mun ekki lagast að neinu viti fyrr en í ársbyrjun 2013 sýnist mér.
Fékk merkilega sýn í gær sem ég hef velt mikið fyrir mér en hún var á þá lund að ríkisstjórnin væri komin í frí og færustu rekstrarverkfræðingar fengnir til þess að reka Ísland eins og fyrirtæki af bestu gerðá öllum sviðum þjóðlífs og pólitík sett í bið.
                                                           Ísland
Já það er deilt og dílað á Alþingi en það sem ég vil segja um þær leiðir sem valdar hafa verið og kynntar verða eftir næstu helgi þegar ég skoða fram í tímann er"Guð fyrirgefi þeim því þeir vissu ekki hvað þeir voru að gjöra"
Menn hafa litið á ferðaþjónustuna sem gullgæs og fjárfest í sumarhúsum og heilu hótelunum fyrir þá gesti sem sagðir eru munu sækja okkur heim en þegar ég skoða næstu 3 ár sýnist mér þetta öfugt farið og minnkun verði 5-10% vegna kreppu í heiminum og menn munu fara illa út úr svona gullglömpun í augum án fyrirhyggju en ég vona sannarlega að þetta gangi ekki eftir.
Þjóðin getur tekið allar framtíðarútreikninga sýnist mér til greiðslu skulda og lifa daglegu lífi má henda út um gluggann þegar gluggapóstur ríkisstjórnarinnar verður kynntur.
Það er alls ekki útilokað sýnist mér að uppreisn verði í þjóðfélaginu vegna þess sem í vændum er en það leysir engann vanda.
Álverð mun lækka aftur á næsta ári með minni aflegð álfyrirtækjanna í þjóðarbúið og einhverjir munu enn leita hófanna eftir vinnu á erlendri grundu aðallega menntað fólk með sérþekkingu sem við megum ekki missa svo sem sérfræðilæknar hjúkrunarfræðingar og fleiri stéttir.
Bankar verða áfram á brauðfótum víða um Evrópu og erfitt verður að afla lánsfés á erlendum mörkuðum fyrir okkur því miður
Samruni slíkra stofnanna verður hér á landi innan 24 mánaða eins og ég hef áður bent á.
Háhitasvæði landsins munu ekki svo ég sé gefa af sér alla þá orku sem menn halda að sé til staðar og munu frekari rannsóknir sýna fram á það og virkjun á jarðskjálftasvæði við Þeystareyki er eitthvað sem menn þurfa að skoða ofan í kjölin því allt svæðið er mjög virkt af jarðskjálftum fyrir utan kvikusvæði sem er innan við 3 km frá yfirborðinu og lítt fýsilegt í hverfla orkuvirkja.
Reykjanesið er viðkvæmt og þær dælingar sem þar fara fram til orkuöflunnar eru ekki ótakmarkaðar og dýrmæt niðurdæling á drykkjarvatni sem mun verða til framtíðar gullsígildi er lýtt fýsileg lausn enda hætta á að vacumið sem myndast dragi inn saltan sjó með tímanum enda kvikusvæði þar líka á um 10km dýpi og sprungur víða.
12.11.2009 17:
                                                     Ísland 21 nóvember
Já það er heldur dapurlegt um að litast í framtíðinni þar sem ljóst er að þingmenn hafa ekki inngrip í orð hinnar helgu bókar"Guð fyrirgefi þeim þar sem þeir vita ekki hvað þeir gjöra"
Þetta er það sem fyrst kemur upp í hugann við þá leikfléttu með íslenskt þjóðlíf þar sem hægri hendin veit ekki hvað sú vinstri er að gjöra.
Það má alveg vera ljóst að fyrri spár mínar um ástandið hér á landi fram undir mitt ár 2013 munu standa og jafnvel lengur.
Icesafe og landsbankinn munu að öllu óbreyttu leggja landið í rúst eins og ég sé það.
 Allar spár um uppleið í framleiðslu útflutningsvara og innflutnings á túristum er óskhyggja ein þar sem þetta gengur ekki eftir vegna kreppu.
Rætt er um samkomulag Nýja Landsbankans  vegna greiðslu afborganna og vaxta fyrir utan Icesafe um að keyra gengið niður á næstu árum vegna 360 milljarða skuldavafninga sem almenningur mun fá því miður .
Mér finnst þegar ég skoða heildarmyndina að sérstakt sé að 6 menn ákveði slíkar upphæðir án samráðs við Alþingi og þjóðina og munu þeir sem bera þessa ábyrgð svara fyrir það síðar.
Þá sé ég ekki að óskhyggjan um að næg orka sé fyrir allar hugmyndir um atvinnuuppbyggingu gangi eftir heldur vegna fjárskorts og skorts á orku úr iðrum jarðar.
Þá hafa menn ekki enn komið auga á að gríðarlegar afskriftir skulda fyrirtækja og einstaklinga eru í pípunum enda stendur ekki til að gengið lagist heldur skal nota lán til að halda genginu uppi og borga reikningana.
Það mun taka landið áratug að jafna sig eftir þetta áfall og er virkilega sárt að ráðamenn þori ekki að rugga bátnum af ótta við stólana.
                                               
                                                         Ísland 26 Nóvember
Þegar ég skoða þessar fyrirhuguðu lánalínur og lengingu á skuldahala þjóðarbússins og það fúafen sem við stefnum í fer bara hrollur um mig.
Ég sé ekki í kortunum að útflytjendur skili að fullu inn seldum afurðum á erlendum mörkuðum og er það í samræmi við fyrri spár en þjóðaríþrótt okkar virðist vera sú að borga ekkert til samfélagsins.
Þjóðarleiðtogar erlendis spá og spekulera í stöðu mála en á meðan sekkur Grikkland Spánn og Ítalía í forarpitt skulda og eru pikkföst með sinn gjaldmiðil Evruna og verða að skera niður útgjöld til almennings.
Dubai olíuríkið getur ekki greitt skuldir fyrir undirstofnun sem var í útrás og er skuldatryggingaálag á ríkisskuldabréfum ríkisins orðið hærra en þess Íslenska og þykir þá nóg um.
Þetta mun eins og ég hef getið um hér að ofan valda miklum skjálfta um allt fjármálakerfi heimsins og á þessari stundu er ómögulegt að spá hvað fjárfestar gera en ég sé þetta eins og mink hafi verið hent inn í hænsnabúr enda dytti varla nokkrum fjárfesti í hug að olíuríki gæti ekki staðið í skilum hverjir þá.
Það er afar athyglisvert fyrir mig úr fjarlægð að skynja hugarfóstur hvers þingmanns og hvernig þessu matardorspili er púslað saman til að halda stólunum og blekkja almenning sem mun koma í ljós síðar en þjóðin mun ekki rísa undir þessum álögum.
Þarna ræður heilbrigð skynsemi ekki ferðinni heldur einskonar baknuddspólitík hjá velflestum þingmönnum í öllum sínum litum.
Gjaldþrot munu aukast bæði einstaklinga og fyrirtækja þar sem atvinnutekjur lækka og þar með greiðslugeta en ekkert af þessu er tekið með í reikninginn og heilög kú
 að skera fitulagið af ríkisbákninu heldur láta þau aldraða öryrkja og barnafólk út á galeiðu fátæktar.
Kæru landsmenn því miður verður veturinn okkur þungbær og ég sendi ljós í kalin hjörtu ykkar og held von ykkar gangandi
                                                        
  27 Nóvember
Jarðvísindamenn hér á landi telja ekki alvarlega hættu á ferðum þótt landris sé í Grindavík en allt svæðið frá Reykjanesi Suðurland yfir vesturhorn Vatnajökuls og Norður til Húsavíkur er varasamt en þessir sömu vísindamenn þurfa að skoða hvers vegna svo mikill þrýstingur er undir landinu og svona grunnt.
Þetta er að ske víða um heim eldgos jarðskjálftar og heilu borgirnar af Borgarísjökum hafa brotnað af Suðurkautinu og silgt 13000km leið að Nýja-Sjálandi þar sem sumar er núna enda eru mikil umbrot um allan heim í farvatninu.
Mikil flóð verða áfram og valda dauðsföllum og hætta á farsóttum í kjölfarið.
                                                        
                                                             30 Nóvember
Ég hef áður ritað um yfirvofandi stríð í Mið-Austurlöndum og þegar ég skoða stöðuna nánar þá finnst mér afar stuttur kveikurinn hjá Ísraelsmönnum gagnvart Íran og finnst mér eins og að þeir muni nánast starta þriðju heimstyrjöldinni með því að senda sprengjuþotur sínar öðru sinni inn til Íran og sprengja upp kjarnorkuver þeirra með ófyrirséðum afleiðingu geislunar.
Mér sýnist sem stór svæði séu svört með hvítum skellum og tíminn nálagt áramótum eða fyrstu 3 mánuði 2010.
                                                              3 Desember
Það er heldur dökkt í kortunum fyrir Evrópu alla svo að við erum hreint ekki ein á báti með það.Það er alveg spurning hvort að Grikkland sé ekki orðið tæknilega gjaldþrota sýnist mér en erfitt að að sjá hvað ríkisstjórn landsins getur gert en tími til aðgerða er í raun runnin út og það sama má segja um Spán og Ítalíu en fresturinn þar er aðeins lengri.
Bretar eru í meiri vanda sýnist mér en þeir þora að viðurkenna en upp úr áramótunum kemur hið sanna í ljós.
Austantjaldslöndin eins og ég hef áður sagt stefna í helfrost með sitt fólk en nú hefur Rússland bæst við með algerri eymd og vanþroskuðu félagskerfi þannig að margir verða úti þennan vetur og aðrir munu svelta í hel.
                                                            4 Desember
Fyrrihluti árs 2010 verður viðburðarríkur í fjármálageiranum aðallega í USA en þar á bæ hafa menn engu gleymt og áhættufíklar á fleygiferð.
Það sem mér sýnist að muni gerast er að fjármálafyrirtæki reyni að losna undan stjórn USA og greiða til baka alla ríkisstyrki og síðan hefjist áhlaupið hver verði stærstur með tilheyrandi kvelli við hrun.
Japan er í mjög alvarlegum málum út af gengi sínu og þær ráðstafanir sem gerðar verða í janúar munu ekki skila tilætluðum árangri heldur færa hagkerfin meira í sundur.
Mikið verðfall verður bæði á ríkisbréfum og hlutabréfum í byrjun næsta árs um allan heim og enn meira hjá þeim ríkjum sem hafa slæmt lánshæfismat.
bankar Evrópu munu hristast og falla á hliðina á næsta ári sumir hverjir og einkum 1 mjög stór með hundruði útibúa um allan heim.
Bretland er rétt um það bil að ganga til IMF um lán enda skulda þeir 173 þúsund milljarða ísl.
Sjórnartslit hér heima eru enn inn í myndinni  og einnig í öðrum Evrópulöndum vegna kreppunnar og má segja að skellur nr.2 sé uppruninn á sama stað og sá fyrsti í USA,en hér heima sé ég enn eins og þjóðin muni klofna í tvennt og mikið hatrammt umrót.
                                                         8 Desember
Bið lesendur að yfirfara spána og fylgjast vel með því sem nú er að gerast á Fjármálamörkuðum víða um heim.Lánshæfismat Grikklands var lækkað í dag af Fits Ratings og verið er að álagsprófa USA og Bretland hvað varðar þjóðarskuldir og bíða fjárfestar með öndina í hálsinum hvað muni ske þá en svarið er hér að ofan.

                                                         10 Desember
                                                           Erlent
Gífurlegt fólksku verk verður unnið annað hvort í Írak eða Afganistan rétt um jólaleitið þar sem mikið mannfall verður og gerendur þeirra eigið fólk.  Ég sé ekki í kortunum að þessum fólskuverkum muni linna á næstunni og ekki tengd veru vestrænna þjóða í löndunum á nokkurn hátt en mun upphefja mikla reiði meðal múslima annarra ríkja.
Brottför herjana verður frestað fram til 2014 hið minnsta en Bin Laden mun ekki finnast þar sem hans er vell gætt á öðrum stöðum en leitað er á.
Mér sýnist að hann hafi klæðst Burku kvenna og þess vegna geta farið á milli svæða óáreittur.
Upplausn verður hjá ESB á nýju ári vegna gríðarlegs kostnaður við reksturinn og hærri framlaga aðildaþjóða og einnig þess að Grikkland er gjaldþrota og örstutt í Spán og Ítalíu en ráðherraráðið kemst ekki að niðurstöðu um hvað eigi að gera í stöðunni fyrr en of seint sem veldur glundroða.
Íran virðist logandi í byrjun árs og aukin harka í þessum heimshluta
Fjármálamarkaðir eru afar brothætti og margir verða fyrir tjóni og þar með íslendingar sem eiga erlend hlutabréf.
Mér sýnist að yfirvöld hér muni gera samninga um eignakönnun við nokkur lönd rétt eins og tvísköttunarsamninga og þá komi ýmislegt óvænt upp úr pokanum svo sem yfir 100 eignir í USA 40 í Bretlandi 21 í Luxemburg 5 á Bahamaeyjum og nokkrar luxussnekkjur.
Icesafe sýnist mér að muni ekki ná fullveldissamningi og litið lengra fram á veginn sýnist mér að ekkert muni ske fyrir hinn almenna borgara heldur þvert á móti.Ég sé landið fyrir mér eins og sjálfstætt og sjálfberandi án jakkafata á erlendri grundu en viðskipti munu halda áfram enda atvinna milljóna manna í hættu víða um Evrópu sem enginn leggur í að kollvarpa.
Ég sé ekki heldur að einhverjir myndu vilja reka okkur úr bandalagi þjóða heldur vegna þeirra eigin hagsmuna án þess að fara nánar út í það .
Tækniþekking mun afla okkur virðingu og atvinnutækifæri munu aukast í hreinni orku og olían okkar er ekki langt undan og rétt að hefja borun á landi fysrt og sjá síðan til með Dreka.
Uppskipting ríkisstjórnar er enn inni í kortunum eftir áramótin en mér sýnist að mjög erfitt verði með þingstörf fram að þeim tíma þar sem sum málin eru mjög stór snerta alla þjóðina og mikil umræða um þau.
Reikna þarf upp á ný alla tekjupósta og reikna þar inn að allt að 20.000 íslendingar flytji af landi brott á næstu 2 árum að óbreyttu ástandi
Íslenskir bændur ættu að leggja út í mjög umfangsmikla kornrækt á öllum svæðum sem mögulegt er að koma fræjum fyrir þar sem korn er og verður mjög dýr útflutningsvara og einnig til neyslu hér á landi og spara gjaldeyri.Ég er að tala um þúsundir hektara ekki nokkur hundruð í tilraunaskini. Ef menn skoða markaðsverð á kippunni á erlendum mörkuðum munu þeir sjá hvers vegna ég sé þetta svona.
Vatnskortur er mjög alvarlegt vandamál við miðbaug og er Ástralía hægt og rólega að þorna upp bæði af drykkjarvatni og til áveitu þar sem allar ár hafa minnkað um yfir tugi prósenta og mun svo verða víða á þessum og öðrum slóðum vegna hækkandi hitastigs.
                                                       Ísland  14 Desember
Mikið er rætt um fjöreggið okkar hin gjöfulu fiskimið umhverfislandið en þegar ég hugleiddi inn á það gullegg vakti það mér ugg í brjósti að eitthvað muni gerast með fiskinn okkar en hvenær og hvað það er er óljóst á þessari stundu en þetta verður verulegt
Íslenskt vatn verður ígildi olíufats til neyslu eftir ekki svo mörg ár og gefa góðar tekjur ásamt innlendri matvöruframleiðslu.
                                                               
                                                           Ísland 18 Desember
Ágætu lesendur.
Þegar þið lesið spána fyrir Október þá hafa allir þeir atburðið komið fram eins og ég sá þá fyrir.
Veðurfar í Evrópu allri er talið furðulegt frosthörkur og allt á kafi í snjó en það mun líka snjóa´víða sem ekki hefur gerst áður og ég hef minnst á.
Við erum hægt og sígandi að sigla inn í nýtt veðurfar um allan heim frosthörkur snjóbylji þurrka uppskerubresti hjá bænum og fleira sem tengt er lofthjúp jarðar 
                                                         20 Desember
Mestu snjóbyljir veraldarsögunnar dynja nú á stórum hluta USA  hnédjúpt í stórborgum og lama alla umferð á landi og raska flugi og nær frostið alveg niður á miðju Florida.
Þá hafa margir orðið úti og veit reyndar enginn fyrir en snjóa léttir hver margir. Fimbulfrost eru í Austur Evrópu og margir orðið úti.
Þetta er það sem ég taldi mig hafa séð fyrir um veður en næsta ár 2010 verður það heitasta á mörgum stöðum frá því mælingar hófust því miður með þurrkum og uppskerubresti ásamt föllnum dýrum bænda.

                                                         24 Desember Aðfangadagur
Þetta er dagur sem fjölskyldur gleðjast en sorglegt er að vita til þess að allt að 10.000 íslendingar hafi þurft matargjafir góðgerðarstofnanna fyrir þessi Jól og því miður sé ég ekki að Jólin 2010 verði betri.
Ég hef endurskoðað fyrri spár og skoðað lengra fram í tímann allt fram til 2016 og líst ekki vel á satt best að segja en þá munum við fá skell og hann harðan.
Fjárlög finnst mér að verði tekin upp aftur fyrir vorið þar sem það fyrra er byggt á fúafeni og það sem er í kortunum fyrir 2011-2012 er nánast eins og hjartslætti allra landsmanna hafi verið stolið af óprúttnum náungum .
Talan 6000 er enn inni varðandi niðurskurð í mannahaldi ríkisstofnanna sýnist mér 2010 og 2011.
Ég vona svo sannarlega að þetta gangi ekki eftir en ég hef áður minnst á umhverfisslys við landið og tengt NA landi en sé mjög stórt skip koma þar við sögu í ofsaveðri en veit ekki hvaða farm það er með en gífulegar umhverfisskemmdir.

                                                            27 Desember

Hryðjuverk halda áfram og eru á næstunni að færast á nýtt þróunarstig sýnist mér en flestar þjóðir munu gera sitt besta til að verja þegna sína en ekki er allt sem sýnist. Mannfall verður áfram hjá Múslimum þar sem skæruliðar  herða enn tökin á meðbræðrum sínum og skeyta engu hvar og hvenær þeir fremja fólskuverk sín og sýnist mér að þeir eigi í einskonar alheimsstríði við allt og alla.
Jörð skelfur en á hafsbotni í Atlandshafi en þar undir er mikil spenna og fljótlega verður þar annar stór.
Mér finnst eins og sporbaugur jarðarinnar hafi eitthvað hnikað til en hafi það gerst getur það valdið mjög alvarlegu veðurfarslegu ástandi um heiminn allan og loftþrýstingsbreytingum.
Eitthvað mikið er að gerast í Afríkuríkjum þar sem ég sé á stórum svæðum látið fólk en ég sé ekki hvort að það stafi af hungri eða veikindum

                                                  Heimurinn  29 Desember
Já það er rétt að hafa augun opin vegna erlendra fjárfestinga á nýju ári þar sem mér sýnist í kortunum að ný fjármálabóla sé í uppsiglingu í Asiu í mars-apríl sem muni hafa keðjuáhrif í USA og sprengja upp verð á ríkisbréfum en botninn detti úr öðrum fjárfestingum.
Flugfélög munu sameinast eins og ég áður sagt og önnur fara á hausinn vegna mikillar hækkanna á rekstrarkostnaði.
Ástand hér heima verður óbreytt frá fyrri spám til ársloka 2013 hið minnsta og því rangt af ráðamönnum að segja á miðju næsta ári horfi til betri vegar og blekkja fólk.
Það má segja að öll Evrópa sé á rúlluskautum upp og niður sýnist mér og kaldur vetur framundan bæði á heimilum og fjármálum þótt bankamenn reyni að bera sig vel en við skulum fylgjast vel með.
Ég hef áhyggjur af því að Rússar komi til með að valda miklum usla í Austur Evrópu sem hefur einnig áhrif á Vesturhlutann í lok janúar byrjun Febrúar vegna gass og olíu.
                                                                    31.12 2009
Til viðbótar efst á síðunni þá finnst mér eins og mjög alvarleg fjármálahneyksli tengt byggingabraski á Dubai komi upp hjá fjölda fólks eftir áramót sem greitt hafi háar fjárhæðir í dollurum fyrir luxusvillur sem ekki verða byggðar.
Það sama mun ske á Spáni í Januar en lægri fjárhæðir. Fasteignabóla í Bretlandi springur með miklum hvelli og margir tapa stórt á dýru húsnæði.
Florida verður fyrir því sama í vor en þar verður allt að 40% verðfall á eignum.

                                                           

» 51 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 153032
Textabox


                                                        Fyrirbænir

Nafn og heimilisfang þeirra sem beðið er fyrir og sendist mér síðan á thorgu@internet.is Öllum hjálparbeiðnum verður sinnt. GSM 6926009